Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Garðfuglahelgin 26. – 29. janúar 2024 – Allir geta tekið þátt

26. janúar - 29. janúar

Frítt
Silkitoppa. ©Jóhann Óli Hilmarsson

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, þá höfum við útbúið:

Garðfuglar – Hjálparblað með myndum.pdf   sem hægt er að prenta út og nota við talninguna.

Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2024

Skráning niðurstaðna

Þú getur valið þá leið sem þér hentar best til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Við mælum með rafrænni skráningu, þar sem gögnin eru þá slegin inn og fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum.

Garðfuglahelgin janúar 2024 rafræn skráning athuguna. 

Ef þú vilt heldur prenta út formið og senda, þá eru tvær útgáfur skjala í boði:

Garðfuglahelgin – eyðublað.pdf (92 kB) 

Garðfuglahelgin – eyðublað.docx (75 kB)

Útfyllt eyðublöð má senda í tölvupósti á gardfugl@gmail.com eða í bréfapósti til: Fuglaverndar, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.

Skilafrestur er til og með 15. febrúar 2024

Garðfuglar

Lestu meira um fóðrun garðfugla, garðyrkju í fuglagarðinum og garðfuglategundir.

Í vefversluninni okkar fást bæði fuglafóður, fuglafóðrarar og fuglahús , bókin “Garðfuglar” og bókin “Væri ég fuglinn frjáls”,  um fyrstu skrefin í fuglaskoðun.

Einnig er að finna alls konar fóðrara og fóðurhús  í vefversluninni. 

 

Details

Start:
26. janúar
End:
29. janúar
Cost:
Frítt
Event Categories:
,

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Ísland
Iceland + Google Map