Fýlsungar í lífshættu

In English: Fulmar chicks in danger

Fýlsungar eru að yfirgefa hreiður frá miðjum águst fram í miðjan september. Þeir svífa frá syllunni sinni  og ná oft ekki út í sjó og lenda þá á landi milli varpstöðva og sjávar. Eftir gott sumar er nú urmull af þeim í Mýrdalnum og vafalaust víðar.

Fæstum fýlsungum þarf að bjarga, þeir spjara sig oftast sem hafa lent á söndum, túnum, engjum, lónum
eða viðlíka “flugbraut”. Þeir léttast á nokkrum dögum og verja tíma sínum við að styrkja vængi og þegar þeir fá góðan  byr undir báða vængi þá komast þeir á flug.
Þeir sem lenda á bílastæðum, vegum, skógi, háu grasi og í lúpínubreiðu gæti hinsvegar þurft að bjarga. Sama er að segja um fýlsunga sem að lenda í skurðum og við girðingar.

ATH: Þegar fýlsungar verja sig þá spýja eða æla þeir lýsiskenndu magainnihaldi sínu. Bunan getur verið
hátt í 2 m á lengd. Það er vissara að varast að lenda í bununni því það er erfitt að ná lýsi úr fötum.

 

Fýlsungi í hreiðri. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Starfsmenn Kötlujarðvangs gerðu stutt leiðbeiningar videó um hvernig maður fangar fýlsunga.

EF ÞAÐ ÞARF AÐ FANGA FÝLSUNGA t.d. í þéttbýli, skóglendi, bílastæði, lúpinubreiðu eða af vegi þá er best að vera með réttan útbúnað.

FÖT: Föt sem má fórna í fýla-spýju, gúmmíhanskar.  Áberandi lit á fatnaði ef verið er við vegi: Áberandi gul vesti.

VERKFÆRI:
Handklæði til að fanga fýlsunga með.

Kassar 2 – 20 kassar til að setja ungana í. Pappakassar með loki hafa reynst vel.
Aðeins má setja einn fýl í kassa. Ef þeir eru tveir eða fleiri þá geta þeir ælt á hvorn annan og verða útataðir í lýsi.
Kassar sem ein Fýlsungabjörgunakona mælir með frá IKEA loftar vel um fýlsungana í þeim

Ekki góðir kassar: Bananakassar og plastkassar.

Bíll og jafnvel kerra.

Fýlsungaplakat frá Kötlu jarðvangi sem má hlaða niður, senda áfram og prenta út

HVAR Á AÐ SLEPPA FÝLSUNGA:

Alls ekki í sandfjöru þar sem er brim, þá velkjast þeir bara um og drepast.

Best er  að sleppa þeim þar sem þeir geta náð að svífa niður á sjávarflöt eða á sléttum þar sem þeir geta þjálfað vængina.

Lygnar ár og víðir ósar koma til greina en varast ber að sleppa þeim í straumharðar.

Sleppistaðir í kringum Mýrdal og undir Eyjafjöllum:

Dyrhólaey neðri eyjan,  Dyrhólaós, lónin hjá Höfðabrekku og Holtsós. Skógaá.

Sandar sunnan lúpínubreiða.

Fýlsungar eru stríðaldir af foreldrum sínum svo þeir verða of þungir til flugs. Fýlavarp hefur teygt sig lengra inn til landsins, fjær sjó en hentugt er fyrir fýlsunga. En fýlum hefur fjölgað á s.l. áratugum og fýlahjón leita sér að góðu hreiðurstæði í björgum.
Nokkrar ástæður eru fyrir vali á björgum fjarri sjó. Þar má telja að sjóbjargastæðin eru frátekin, viðkomandi fýll ólst upp á syllu t.d. í Markarfljótgljúfrum og leitar heim.
Fýlar geta orðið allt að 60 ára gamlir og geta komið upp einum unga árlega.

Við þiggjum með þökkum ábendingar um góða sleppistaði fýlsunga um land allt.

Fýlsungaplakat sem má prenta út í A3 og lit og hengja upp: fýlsungaplakat til dreifingar 2022 Fugavernd

Meiri fróðleikur um fýla 

Enn meiri fróðleikur

Viðtal við fýlsunga-björgunarfólk í Landanum árið 2021 sem sýnir hvernig björgun fer fram