Gott starf var unnið í Vatnsmýrinni í Reykjavík laugardaginn 5. apríl þegar sjálfboðaliðar Fuglaverndar mættu á staðinn og tíndu rusl og röðuðu greinum á bökkum tjarna og síkja. Greinarnar hefta rof á bökkunum og veita andarungum skjól. Nokkrir félagar fundu fornmuni í síki og var í framhaldinu haft samband við borgarminjavörð og er þetta á könnu hans.
Tekið var gott hlé í hádeginu og snædd dýrirndis súpa í boði Plöntunnar, veitingastaðar Norræna hússins ásamt brauði og áleggi í boði Fuglaverndar. þátttakendur kynntu sig hver fyrir öðrum á meðan borðhaldi stóð og mikið var rabbað um fugla, votlendi og fornminjar.
Vorverk í Vatnsmýri er ekki einungis vinna heldur einnig vettvangur til að hitta aðra félaga fuglaverndar og fuglavini.
Sjálfboðaliðastarf Fuglaverndar er mikilvægur hlekkur í starfi þess. Það þarf að taka til hendinni á svæðum sem að félagið er með í sinni umsjón og síðan er þetta vettvangur fyrir félaga til að hittast og kynnast.
Nokkrir sjálfboðaliðar Fuglaverndar komu saman í Vatnsmýrinni laugardaginn 15. apríl og tóku til hendinni við að hreinsa rusl í kringum friðlandið og upp úr tjörnum og síkjum. Þetta var aldeilis þarft verk og alltaf er fólk jafn hissa á því hvað safnast saman: Plastbretti af bílum, einangrunarplast, plast umbúðir stórar og smáar, þúsund sígarettusíur (filter) og þar fram eftir götunum. Veður var milt og gott og vannst verkið vel og þáðu allir hressingu í gróðurhúsi Norræna hússins í hléinu.
Sjálfboðaliðar og ruslið sem var safnað saman í Vatnsmýrinni .
Tveir sjálfboðaliðar merktu göngustíg í Friðlandi í Flóa 23. apríl. Þann morgun var slatti af lóuþrælum í flóanum. Nokkuð fleri sjálfboðaliðar mættu í Friðlandið 28. apríl þegar skyndilega hafði snjóað í milt vorið. Gengið var rösklega til verka: Kamar þrifinn, fuglaskoðunarhús þrifið, tröppur yfir girðingu festar, hlið að göngustíg lagað, göngubrú færð, fuglaskoðunarhús skrapað undir fúavörn og týnt rusl. Mikið vatn var báðar helgarnar í flóanum og há stígvél komu að góðum notum. Þegar sjálfboðaliðarnir tóku hádegishlé þá hurfu ský af himni og sólskinið náði að verma Friðland, fugla og fólk. Fuglar hímdu á veginum að Friðlandinu og meðal tegunda sem þar sáust á flugi, sundi eða vappi í Friðlandinu voru lómar, lóur, starar, hrossagaukar og álftir.
Sjálfboðaliði skrapa fuglaskoðunarhúsið í Friðlandi í Flóa.
Félagar taka til hendinni í Friðlandi í Flóa 2023. Ljósmynd; Anna-María Lind Geirsdóttir
Sjálfboðaliðar í Friðlandi í Flóa 2023. Ljósmynd AMLG
To provide the best experiences, we use technologies like cookies to store and/or access device information. Consenting to these technologies will allow us to process data such as browsing behavior or unique IDs on this site. Not consenting or withdrawing consent, may adversely affect certain features and functions.
Functional
Always active
The technical storage or access is strictly necessary for the legitimate purpose of enabling the use of a specific service explicitly requested by the subscriber or user, or for the sole purpose of carrying out the transmission of a communication over an electronic communications network.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Statistics
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes.The technical storage or access that is used exclusively for anonymous statistical purposes. Without a subpoena, voluntary compliance on the part of your Internet Service Provider, or additional records from a third party, information stored or retrieved for this purpose alone cannot usually be used to identify you.
Marketing
The technical storage or access is required to create user profiles to send advertising, or to track the user on a website or across several websites for similar marketing purposes.