Lundi hávaður í Vestmannaaeyjum – Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson

IBA er stytting á Important Bird Areas sem á íslensku útleggst sem alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði en alþjóðlegu fuglaverndarsamtökin BirdLife halda skrá yfir svæðin allstaðar í heiminum.

Eitt af verkefnum Fuglaverndar er að endurskoða skránna og bæta við nýjum svæðum sem standast kröfur BirdLife International.

IBA svæði á Íslandi – staðan 2019

Á skrá Birdlife International eru nú 99 svæði á Íslandi. Sjá: IBA svæði á Íslandi

Meðal IBA svæða á Íslandi má nefna:

– Eldey, þar sem er talin er vera stærsta súlubyggð í Evrópu (og þar sem síðasti geirfuglinn var veginn). Sjá: vefmyndavél í Eldey.

– Vestmannaeyjar, vegna varps sjósvölu, stormsvölu og lunda. Sjá: IBA Vestmannaeyjar á vef Birdlife.

– Þjórsárver, eitt helsta varpland heiðargæsa og skiptir sköpum fyrir stofninn á Íslandi og Grænlandi. Sjá: Þjórsárver á vef UST

Lykilstaðreyndir um IBA svæði

  • Til þessa hafa 12.000 svæði verið skilgreind sem alþjóðlega mikilvæg. Þetta á bæði við um mikilvæg fuglasvæði og mikilvæg svæði líffræðilegrar fjölbreytni (bio diverse sites).
  • Til að greina alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði og svæði líffræðilegrar fjölbreytni (Bird and Biodiversity Areas or IBA’s) er alþjóðlega viðurkenndum viðmiðum beitt staðbundið af sérfræðingum og þátttakendum BirdLife, Fuglavernd í tilviki Íslands.
  • 33% IBA svæðanna njóta engrar formlegrar náttúruverndar og önnur 45% svæðanna njóta aðeins náttúruverndar að hluta. Þessi svæði eru meðal verkefna sem eru hvað mest aðkallandi þegar kemur að forgangsröðun náttúruverndar á heimsvísu.
  • BirdLife viðurkennir að formleg náttúruvernd er ekki eina lausnin og vinnur því ásamt samstarfsaðilum að samþætta náttúruvernd með sjálfbærri þróun.

Lesa meira um IBA svæði á vef Birdlife

Sjófuglabyggðir á Íslandi

Fuglavernd hefur lagt sérstaka áherslu á búsvæðavernd í starfi sínu. Með því að beina kastljósi að sjófuglabyggðum á Íslandi viljum við efla fræðslu um tegundir sem eru í útrýmingarhættu og lykillinn að því að sporna gegn þeirri þróun er að standa vörð um búsvæði tegundanna.