Wilsons Bird of Paradise. Ljósmynd ©Yann Kolbeinsson.

Tanah Papua: Á slóðir paradísarfugla

Miðvikudagskvöldið 20. febrúar kl. 20:00 heldur Yann Kolbeinsson myndasýningu í sal Arion banka Borgartúni 19 105 Reykjavík og segir frá ferð sinni til Vestur Papúa.

Haustið 2017 fóru Yann Kolbeinsson og Charla Basran til Nýju Gíneu í Eyjaálfu. Um er að ræða aðra stærstu eyju heims en ferðalagið var bundið við vesturhluta svæðisins. Það er í daglegu tali kallað Vestur Papúa og tilheyrir Indónesíu.

Nýja Gínea er vafalítið frægust fyrir sína margbreytilegu og litskrúðuga paradísarfugla. Langflestar tegundir þessa hóps eru bundnar við eyjuna og hennar næsta nágrenni en eftir að hafa komið á þessar slóðir er auðskilið hvers vegna þessi leyndardómsfulla ætt fugla er kennd við paradís. Ósnortin náttúra einkennir enn þennan heimshluta.

Hvort sem um er að ræða líf á landi eða í sjó þá er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá handan við næsta horn. Á þessu þriggja vikna ferðalagi sáust nærri 240 tegundir fugla en dágóður hluti ferðarinnar fór einnig í að njóta strandlífs sem og skoða hin fjölbreytilegu kóralrif þar sem upp úr stóð heimsins stærsti fiskur, hvalháfurinn.

Sýningin hefst kl. 20:00.

Allir velkomnir, frítt inn fyrir félagsmenn Fuglaverndar. Aðgangseyrir 500 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Tansanía í máli og myndum

Þriðjudagskvöldið 20. mars kl. 20:00 mun Helgi Guðmundsson leiðsögumaður sýna myndir og segja frá ferð sem hann fór ásamt bróður sínum til Tansaníu á síðasta ári.

Í ferðinni bar fyrir augu fjölda fugla og dýra og varð afraksturinn m.a. aragrúi ljósmynda. Ætlunin er að stikla á stóru og verður borið niður hér og hvar af handahófi í myndahaugnum.

Að vanda er frítt inn fyrir félagsmenn Fuglaverndar en 500 krónu aðgangseyrir fyrir utanfélagsmenn.

Gerast félagi í Fuglavernd

 

Náttúrulífsljósmyndir

Hér eru nokkrar myndir sem Helgi Guðmundsson leiðsögumaður tók í ferð sinni til Tansaníu.

 

Canon kynning og myndakvöld

Fuglavernd, Canon og Nýheri efna til viðburðar fimmtudagskvöldið 30. mars kl. 19:30 þar sem öflugir fuglaljósmyndarar munu sýna ljósmyndir auk þess sem veitt verður fræðsla um fuglaljósmyndun.

Á viðburðinum munu Eyþór Ingi Jónsson, Gunnlaugur Sigurjónsson og Ingi Steinar Gunnlaugsson vera með myndasýningar og segja sögurnar á bak við þeirra myndir.

Þá mun Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar og fuglaljósmyndari kynna félagið í stuttu máli og tæpa á siðfræði fuglaljósmyndunar.

Úrval af Canon ljósmyndabúnaði til sýnis.

Frá Canon Europe hefur Nýherji fengið lánaðar aðdráttarlinsur sem verða til sýnis, m.a. EF 200-400 mm f/4L IS USM Extender 1.4X, EF 400mm f/2.8L IS II USM og EF 500 mm f/4L IS II USM.

Þá verða nýjustu Canon EOS myndavélarnar á staðnum, m.a. EOS 7D Mark II, EOS 5D Mark IV og EOS-1D X Mark II.

Viðburðurinn fer fram hjá Nýherja, Borgartúni 37 og hefst kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00 þar sem áhugasamir geta skoðað Canon ljósmyndabúnað.

Frítt inn og allir velkomnir, en nauðsynlegt er að skrá sig á vef Nýherja.

Skráðu þig á Fuglar og ljósmyndun með Canon

Viðburðurinn á Facebook: Canon kynning og myndakvöld 30. mars

Höfðahoppari. Ljósmynd: Yann Kolbeinsson

Myndakvöld – Suður-Afríka

Á heimaslóðum höfðahopparans er yfirskrift ljósmyndakvölds sem haldið verður í sal Arionbanka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, miðvikudagskvöldið 15. febrúar 2017.

Sýndar verða ljósmyndir frá ferð þeirra Aðalsteins Arnar Snæþórssonar, Ib Krag Petersen, Sölva Rúnars Vignissonar og Yanns Kolbeinssonar um Western Cape hérað í Suður-Afríku. Sýndar verða myndir af fjölbreyttu fuglalífi og landi þessa einstaka heimshluta þar sem Atlantshaf mætir Indlandshafi.

Myndasýningin hefst kl. 20:00

Aðgangseyrir: 500 krónur fyrir utanfélagsmenn.

Frítt inn fyrir félagsmenn Fuglaverndar.

Viðburðurinn á Facebook: Myndakvöld – Suður-Afríka

Myndasýning- 18. maí

Á slóðum mörgæsa og sela – Ljósmyndasýning frá ferð sem Gunnlaugur Sigurjónsson og Jóhann Óli Hilmarsson fóru í nóvember 2015 til Suður Georgiu og Falklandseyja með viðkomu í Chile. Sýndar verða myndir af dýra og fuglalífi á þessum suðrænu slóðum. Suður Georgia er einstök eyja hvað varðar fugla og dýralíf og leit er að annarri eins paradís fyrir náttúruljósmyndara.

Atburðurinn verður í Borgartúni 19 í húsakynnum Arion Banka og hefst kl. 20:30 þann 18. maí 2016. Sýningin hefst stundvíslega og er öllum opin svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra.

Fuglar og ljósmyndun 19.03.2015

Fuglavernd, Canon og Nýherji verða með fræðslufund um fuglaljósmyndun fimmtudagskvöldið 19. mars 2015 ásamt því að sýna aðdráttarlinsur frá Canon. Þar munu bæði atvinnumenn og áhugafólk um fuglaljósmyndun veita fræðslu, en meðfram því að leggja áherslu á fuglavernd verður farið í tæknileg atriði sem og praktíska hluti, eins og t.d. hvernig er best að nálgast fugla í sínu náttúrulega umhverfi. Viðburðurinn fer fram í Nýherja, Borgartúni 37, og hefst kl. 19:30. Þátttaka er ókeypis en óskað er eftir skráningu (hér er linkur á skráningarsíðu). Jóhann Óli Hilmarsson fjallar um virðingu fyrir viðfangsefninu og kemur þar aðeins inná löggjöf um fuglavernd. Þá fjallar hann um góða staði til að ljósmynda fugla ásamt því að sýna myndir af fuglum í umhverfi sínu. Sindri Skúlason fer yfir listina að mynda fugla ásamt því að fara lauslega í tæknileg atriði og hvernig best er að nálgast fugla og hvað sé mikilvægt að hafa í huga við fuglaljósmyndun (hann tók myndina af flórgoðanum). Ásta Magnúsdóttir og Helga Guðmundsdóttir sýna valdar myndir og segja sögurnar á bak við þær. Nýherji hefur fengið lánaðar aðdráttarlinsur hjá Canon sem verða til sýnis, m.a. hina nýju EF 100-400mm f/4.5-5.6L IS II USM, EF 200-400mm f/4L IS USM Extender 1.4X, EF 500mm f/4L IS II USM o.fl. Skemmtilegur og spennandi viðburður fyrir alla áhugasama um fugla og fuglaljósmyndun!