Nærri 20 manns á öllum aldri fóru í fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa síðastliðinn þriðjudag. Leiðsögumaðurinn að þessu sinni var Gunnlaugur Þráinsson, viðskiptafræðingur, fuglaskoðari og félagi í Fuglavernd. Veðrið var gott, sólin gægðist á milli skýja með eilitlum vindi.
Vinningshafar með í för
Ungir sem aldnir sáu 17 tegundir í Friðlandinu sjálfu: Álft, stokkönd, skúfönd, æðarfugl, toppönd, spóa, hrossagauk, óðinshana, stelk, lóuþræl, hettumáf, svartbak, sílamáf, kríu, lóm, hrafn og þúfutittling. Jaðrakan og tjaldur spókuðu sig einnig um rétt hjá veginum á leiðinni í Friðlandið.
Lómurinn vakti skiljanlega athygli þar sem mikið var um hann á tjörnunum en hann er einmitt einkennisfugl svæðisins.
Með í ferðinni voru tveir af þremur vinningshöfum lógó– og slagorðasamkeppni Mýralífs, verkefnis sem Fuglavernd er samstarfsaðila að, þau Christian Schultze og Marey Ólafía Kristinsdóttir.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá fuglaskoðuninni. Hægt er að tvísmella á myndirnar til að:














