Álftir, með unga á bakinu

Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir

Stjórn Fuglaverndar tekur alvarlega þær áhyggjur kornbænda sem komið hafa fram að undanförnu varðandi tjón af völdum álfta. Félagið telur að skoða þurfi aðrar leiðir til að draga úr tjóninu en að skjóta álftir. Ljóst er að stjórnvöld þurfa að huga að þessu máli og reyna að finna ásættanlegar lausnir sem ekki fela í sér fugladráp.

Í frétt RÚV frá 21. október síðastliðnum var greint frá því að svína- og kornbóndi í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vildi að gefið yrði leyfi til að skjóta álftarunga því fuglinn fjölgaði sér svo ört. Fram kom að bóndinn væri með miklar varnir til að verjast fuglunum, eins og fuglahræður hér og þar á ökrum og hljóðfælur, en það virkaði lítið sem ekkert.

Ýmsar aðferðir notaðar erlendis

Stjórn Fuglaverndar þykir leitt að heyra að álftir hafi valdið miklum skaða á ræktarlandi og uppskeru og að aðgerðir sem gripið hefur verið til hafi ekki haft þau áhrif sem vonast var eftir. Reynsla erlendis hefur þó sýnt að margar aðferðir til að bregðast við tjóni á ræktarlöndum hafi skilað góðum árangri og vert er að skoða þær til hlítar.

Hægt er að fæla fugla frá ræktarlandi með ýmsum aðferðum. Sjónrænar fælur eru meðal annars fuglahræður, flugdrekar og blöðrur sem líkja eftir ránfuglum, borðar sem endurkasta ljósi, eftirlíkingar af rándýrum og leysigeislar. Búnaður sem hreyfist virðist almennt líklegri til að skila árangri en kyrrstæðar fælur. Einnig má nota hljóðfælur, svo sem neyðarköll fugla, gasbyssur og hátíðnihljóð. Hundar geta nýst vel til að fæla fugla, sérstaklega ef þeir eru vel þjálfaðir. Þá eru drónar sífellt álitlegri kostur, enda má nýta þá samhliða sjónrænum og hljóðrænum fælubúnaði.

Faglegar úttektir og rannsóknir nauðsynlegar

Eðlilegt er að upp komi árekstrar á milli hagsmuna villtra dýra og landbúnaðar. Atvinnugreinin þrífst á nýtingu náttúrulegra búsvæða villtra dýra og akuryrkja er í eðli sínu þannig að hún framleiðir fæðu sem ýmis villt dýr sækja í – stundum eftir að verulega hefur verið gengið á náttúruleg búsvæði á og við landbúnaðarlandið. Einhver afföll uppskeru vegna slíkra árekstra eru eðlileg og ættu að vera hluti af rekstraráætlunum landbúnaðarins.

Engu að síður hefur stjórn Fuglaverndar skilning á því að rýrnun uppskeru hafi sársaukamörk fyrir bændur og geti komið ójafnt niður eftir landsvæðum. Einnig telur Fuglavernd að vinna ætti að mögulegri lausn sem hagaðilar geta sætt sig við. Enginn ágreiningur er um að álftir geta valdið uppskerutapi í túnum og á kornökrum. Umfang þessa tjóns hefur þó hvorki verið metið með fullnægjandi hætti, né hafa stjórnvöld stutt við bændur með ráðgjöf eða fjármagni til að draga úr því. Fuglavernd hefur talað fyrir því að gerðar verði faglegar úttektir og rannsóknir á þessu tjóni og að unnið verði að prófun og þróun gagnreyndra aðferða til að bregðast við því við íslenskar aðstæður.

Hætta á ofveiði

Allar fuglategundir landsins eru í grunninn friðaðar. Þó er ráðherra heimilt að skilgreina veiðitíma og aflétta friðun á hluta tegundanna sem veiddar eru til nytja eða vegna meints tjóns. Álft hefur verið friðuð frá ársbyrjun 1914 og álftaveiðar því ekki verið stundaðar í tæp 113 ár. Að auki er álftin friðuð í Evrópu samkvæmt Bernarsamningnum, sem Ísland er aðili að.

Miklu flatarmáli af náttúrulegum búsvæðum álfta hefur á þessum tíma verið raskað eða eytt, til dæmis með framræslu votlendis, en álftastofninn hefur þó vaxið á undanförnum árum, að líkindum vegna aukinnar kornræktar og hagstæðs veðurs og loftslags, sem meðal annars hefur aukið náttúrulegan gróður. Við síðustu úttekt árið 2020 var stærð stofnsins metin um 43 þúsund fuglar og er talið að um 5 prósent hans dvelji á Íslandi að vetrum.

Fuglavernd hefur áhyggjur af því að ef skotveiðar á álftum yrðu leyfðar væri hætta á ofveiði mikil og væri auðvelt að veiða miklu meira en stofninn getur borið. Ástæðan fyrir því er meðal annars að álftir eru svifaseinar og áberandi og væru mjög auðveld bráð skotveiðimanna yrðu almennar veiðar á þeim leyfðar.

Veiðar myndu ekki leysa vandamálið

Stjórn Fuglaverndar bendir einnig á að alls ekki sé víst að álftaveiðar myndu draga úr tjóni í ræktarlandi nema ef tegundin yrði stórlega ofveidd, sem bæði gengi gegn alþjóðlegum skuldbindingum Íslands og er líklega ekki mikil stemning fyrir í samfélaginu. Samband umfangs mögulegra veiða og umfangs tjóns er ólínulegt og er alls ekki víst að tjónið myndi minnka umtalsvert á því svæði sem veiðarnar færu fram, jafnvel þótt stofnstærðin í heild minnkaði. Kornakrar hafa mikið aðdráttarafl fyrir álftir og gæsir þegar kornið hefur náð þroska að hausti. Þótt fækkað yrði í hópi þeirra er allt eins víst að aðrir einstaklingar kæmu inn á svæðið í staðinn.

Yrðu veiðiheimildir takmarkaðar við einstök tilfelli er sömuleiðis óvíst að þær hefðu veruleg áhrif á tjónið. Til að mynda er vel þekkt að gæsaveiði er stunduð á tilteknum ökrum allt haustið en fuglarnir koma þó aftur og aftur í sömu akrana. Þeir eru meira á varðbergi og styggari en þrátt fyrir það yfirgnæfir fælingarmáttur veiðanna ekki vilja fuglanna til að komast í góða fæðu. Sem dæmi um þetta þá hafa helsingjaveiðar til að draga úr tjóni á vetrarstöðvum sums staðar lagst af vegna þess hversu mikil vinna er að viðhalda fælingarmætti veiðanna og þar með draga úr tjóni á ræktarlandi. Erlendar rannsóknir hafa líka sýnt að þættir eins og fjarlægð í náttúruleg votlendi, skjólbelti við akra, girðingar þétt upp við kornið og fleiri atriði hafi áhrif á umfang tjóns.

Stjórn Fuglaverndar telur því að áður en gripið er til þess ráðs að skjóta álftir ætti að kanna til hlítar hvaða aðrar leiðir eru færar og hvernig hægt væri að styðja bændur við að draga úr tjóni en þar þarf aðkomu stjórnvalda. Markmiðið hlýtur að vera lausn sem byggir á gögnum og aðferðum sem raunverulega virka – og sem tekur tillit til hagsmuna bæði bænda og náttúruverndar.

Mynd af álftum: Eyþór Ingi Jónsson

Fuglaskoðun í Friðlandi í Flóa 9. júní 2026

Friðlandið skartaði sínu fegursta

Nærri 20 manns á öllum aldri fóru í fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa síðastliðinn þriðjudag. Leiðsögumaðurinn að þessu sinni var Gunnlaugur Þráinsson, viðskiptafræðingur, fuglaskoðari og félagi í Fuglavernd. Veðrið var gott, sólin gægðist á milli skýja með eilitlum vindi.

Vinningshafar með í för

Ungir sem aldnir sáu 17 tegundir í Friðlandinu sjálfu: Álft, stokkönd, skúfönd, æðarfugl, toppönd, spóa, hrossagauk, óðinshana, stelk, lóuþræl, hettumáf, svartbak, sílamáf, kríu, lóm, hrafn og þúfutittling. Jaðrakan og tjaldur spókuðu sig einnig um rétt hjá veginum á leiðinni í Friðlandið.

Lómurinn vakti skiljanlega athygli þar sem mikið var um hann á tjörnunum en hann er einmitt einkennisfugl svæðisins.

Með í ferðinni voru tveir af þremur vinningshöfum lógó– og slagorðasamkeppni Mýralífs, verkefnis sem Fuglavernd er samstarfsaðila að, þau Christian Schultze og Marey Ólafía Kristinsdóttir.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá fuglaskoðuninni. Hægt er að tvísmella á myndirnar til að:

 

Tekið til hendinni í Vatnsmýrinni

Sjálfboðaliðar tóku til hendinni í blíðskaparveðri um síðustu helgi í Vatnsmýrinni í Reykjavík, undir leiðsögn þeirra Ólafs Karls Nielsen, öflugs vistfræðings og fyrrverandi formanns Fuglaverndar, og Ólafs Einarssonar, líffræðings og kennara.

Alls tóku tólf sjálfboðaliðar þátt í tiltektinni. Þeir tíndu rusl og komu fyrir trjágreinum á tjarnarbökkum sem Reykjavíkurborg lagði til. Markmiðið var að bæta aðgengi fugla að tjörnunum og styrkja bakkana til að draga úr rofi.

Vel var hugsað um mannskapinn. Fuglavernd og veitingastaðurinn Plantan buðu upp á hádegismat og Norræna húsið opnaði kaffistofu starfsmanna sinna fyrir hópinn.

Bleshæna heiðraði með nærveru sinni

Veðrið lék við sjálfboðaliða að þessu sinni þrátt fyrir svalan norðanandvara og gekk verkið afar vel. Þá var sérstaklega ánægjulegt að magn rusls reyndist minna en oft áður.

Gestur svamlaði á einni tjörninni á meðan tiltekt stóð, nánar tiltekið bleshæna (Fulica atra) sem er flækingur af relluætt.

Fuglavernd þakkar sjálfboðaliðum kærlega fyrir framlag sitt og fyrir að hjálpa til við að gera Vatnsmýrina fýsilega fyrir vorið.

Sigurvegari slagorðasamkeppni – „Bjóðum fuglum heim“

Bjóðum fuglum heim er nýtt slagorð verkefnisins Peatland LIFEline. Blásið var til slagorðasamkeppni á samfélagsmiðlum á meðal almennings til að fanga anda íslensks votlendis, endurheimtar og tenginu við náttúru. Höfundur slagorðsins er Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrúi hjá LBHÍ. Dómnefnd skipuðu Andri Snær Magnason rithöfundur, Bragi Valdimar Skúlason textasmiður og Bára Huld Beck kynningarstjóri verkefnisins.

Frestur rann út þann 16. janúar síðastliðinn og bárust alls 23 tillögur. Mörg hnyttin og skemmtileg slagorð voru meðal tillagna en var það einróma álit dómnefndar að vinningsslagorðið ætti best við verkefnið. Í umsögn dómnefndar segir: „Bjóðum fuglum heim er fallegt slagorð og rímar geysilega vel við markmið verkefnisins og nýtt merki/lógó þess sem er af fuglinum jaðrakan. Slagorðið er heimilislegt og kammó – og hljómar vel í okkar eyrum.“

Ásamt slagorðinu er komið íslenskt nafn fyrir verkefnið: Mýralíf. Þykir það vera í miklu samræmi við tilgang verkefnisins og passar vinningsslagorðið einstaklega vel við nýja nafnið.

Christian Schultze vinningshafi og Elisabeth Jeanne Marie Heloise Bernard verkefnastjóri Mýralífs. Mynd: Utra Mankasingh
Um verkefnið

Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-áætluninni, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Það hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.

Markmið Mýralífs er að efla yfirsýn og þekkingu á íslensku láglendisvotlendi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og hlutverki í kolefnishringrásinni. Sérstök áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist, sem hefur mjög hátt verndargildi, auk fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls, sem eru mikilvægir vísar um heilbrigði votlendis. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu.

Íslenskt votlendi er einstakt í Evrópu, meðal annars vegna samspils ungs berggrunns, eldvirkni, áfoks og eldgosasögu. Þéttleiki fuglalífs er mikill og nokkrar tegundir reiða sig að stórum hluta á þessi svæði. Verkefnið mun leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra, auk þess sem lögð er áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.

 

Melsá í Hraundal 2025

Gömul stífla fjarlægð í Melsá

Stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal hefur verið fjarlægð. Framkvæmdum lauk í desember síðastliðnum með góðum árangri. Open Rivers Programme, styrktarsjóður til að styðja við áætlanir um að fjarlægja manngerðar stíflur í árfarvegum, styrkti Fuglavernd árið 2025 til að fjarlægja stífluna.

Kom á óvart hver mikið af steinsteypu var undir torfgarðinum

Markmið framkvæmdarinnar var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska – og gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp ána. Samstarfsaðilar Fuglaverndar voru Land og skógur, Hafrannsóknarstofnun og Breska fuglaverndarfélagið (RSPB).

Rannsóknir hófust í byrjun maí og var stíflan var svo fjarlægð með öllu í desember 2025. Framkvæmdin gekk vel en hún tafðist eilítið vegna mikilla rigninga og þurfti að bíða eftir frosti svo þungar vinnuvélar kæmust alla leið á framkvæmdarsvæðið. Það kom á óvart hve fjarlægja þurfti mikið af steinsteypu sem kom í ljós undir torfgarðinum út frá stíflunni.

Melsá í Ytri-Hraundal
Svona leit stíflan út áður en hún var fjarlægð. Mynd: Jóhannes Guðbrandsson.
Mikilvægt að varna rofi í árbökkum

Fuglavernd réð sérfræðinga frá skoska fyrirtækinu CBEC sem sérhæfa sig í náttúrumiðuðum lausnum í endurheimt árfarvega. Vatnsstreymi var mælt fyrir og eftir framkvæmd og passað var upp á að varna rofi í árbökkum eftir að stíflan var fjarlægð.

Þetta er í annað sinn sem Open Rivers Programme styrkir Fuglavernd. Góðgerðarsamtök, frjáls félagasamtök og opinberir aðilar geta sótt um styrki til að fjarlægja smærri stíflur í ám og lækjum sem hafa áhrif á vatnasvið og líffræðilegan fjölbreytileika.

Melsá í Hraundal
Markmið framkvæmdarinnar var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska – og gera sjóbirtingi kleift að ferðast upp ána. Mynd: Iðunn Hauksdóttir

Frekari upplýsingar um verkefnið og myndir má finna hér.

Gunnar Karl Thoroddsen og Marey Ólafía Kristinsdóttir

Vinningshafar í lógó-hönnunarsamkeppni Peatland LIFEline

Verkefnið Peatland LIFEline efndi til hönnunarsamkeppni á dögunum til að finna lógó sem fangar anda íslensks votlendis – endurheimt og tengingu við náttúruna. Samkeppnin var opin nemendum í hönnun og byggði á frumlegum hugmyndum sem sprottnar voru upp úr 24 uppástungum sem börn og unglingar teiknuðu á Vísindavöku 2025. Hver þátttakandi gat sent inn tvær tillögur með stuttri röksemdafærslu.

Dómnefnd mat innsendar tillögur samkvæmt matskvarða sem byggði á tengslum við verkefnið, frumleika, einfaldleika og skýrleika, litanotkun og tengingu við barnateikningu. Allir nemendur í hönnun voru hvattir til að taka þátt. 

„Lýsir kjarna verkefnisins einstaklega vel“

Gunnar Karl Thoroddsen, nemi í Listaháskóla Íslands (LHÍ), bar sigur úr býtum eftir vandlega íhugun dómnefndar. Verðlaunaafhending var haldin á skrifstofu Fuglaverndar í gær, miðvikudaginn 17. desember, við notalega athöfn. Ásamt Gunnari hlaut Marey Ólafía Kristinsdóttir, 6 ára, viðurkenningu fyrir skemmtilega teikningu sem var innblástur vinningsmerkisins. 

Dómnefnd skipuðu Eggert Pétursson myndlistarmaður, Nick Folkard fulltrúi bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB og Fífa Jónsdóttir formaður dómnefndar og sérfræðingur í vísindamiðlun hjá Landi og skógi. Átta frábærar tillögur bárust dómnefnd frá fimm nemendum LHÍ. 

Í umsögn dómnefndar segir að þau hafi verið sammála um að hönnunin hefði gripið anda verkefnisins á lofti og túlkað hann á einfaldan og skiljanlegan hátt. „Merkið er einfölduð mynd af jaðrakan í vatni sem lýsir kjarna verkefnisins einstaklega vel. Dómnefndin hreifst strax af tillögu Gunnars enda var hún heildstæð og vel út hugsuð frá upphafi. Grafísk túlkun fuglsins er einföld en hefur þægilega dýpt. Samkvæmt lýsingu keppninnar þá tók hann sér teikningu barns til fyrirmyndar og það var mynd Mareyjar Ólafíu Kristinsdóttur (8 ára) sem veitti honum innblástur. Val þeirra beggja á myndmáli sýnir sterka tengingu við íslenska náttúru og segir allt sem segja þarf um markmið verkefnisins. Litanotkun og letur fóru vel saman við það myndræna og auðvelt verður að nýta merkið til þess að kynna verkefnið hér á landi og erlendis næstu fimm árin.“

Um Peatland LIFEline

Peatland LIFEline er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Fuglaverndar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-sjóðnum, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Það hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.

Markmið Peatland LIFEline er að efla yfirsýn og þekkingu á íslensku láglendisvotlendi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og hlutverki í kolefnishringrásinni. Sérstök áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist, sem hefur mjög hátt verndargildi, auk fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls, sem eru mikilvægir vísar um heilbrigði votlendis. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu. 

Íslenskt votlendi er einstakt í Evrópu, meðal annars vegna samspils ungs berggrunns, eldvirkni, áfoks og eldgosasögu. Þéttleiki fuglalífs er mikill og nokkrar tegundir reiða sig að stórum hluta á þessi svæði. Verkefnið mun leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra, auk þess sem lögð er áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.


Langvía Mynd: Jóhann Óli

Háleit markmið ekki nóg – Ráðast þarf í aðgerðir undireins

„Stytta þarf veiði­tíma svart­fugla strax,“ er titill aðsendrar greinar sem birtist nýlega á Vísi eftir Hólmfríði Arnardóttur framkvæmdastjóra Fuglaverndar og Helgu Ögmundardóttur stjórnarmanns í Fuglavernd. Greinin er mikilvægur liður í því að varpa ljósi á stöðu svartfugla á Íslandi; hverjar helstu ógnir stofnsins eru og hvaða aðgerða er þörf.

Í greininni er meðal annars fjallað um stöðu lundans en hún er alvarleg þrátt fyrir dálæti fólks á honum. „Þótt lengi hafi verið vitað um hnignun lundastofnsins hefur lítið verið gert til að stöðva þróunina. Langstærstur hluti lundastofnsins verpur á Íslandi, eða um 60% af heimsstofninum. Lundi hefur hér á landi verið á skrá sem tegund í bráðri hættu frá árinu 2018. Meðalstofnvöxtur íslenska lundastofnsins hefur verið undir stofnvistfræðilegum sjálfbærnimörkum að mestu leyti í um 30 ár eða frá árinu 1995. Samdrátturinn stafar einkum af svæðisbundnum viðkomubresti hjá lunda sökum fæðuskorts. Þegar svo háttar til bæta veiðar gráu ofan á svart hvað varðar stöðu stofnsins og eru ósjálfbærar, sem gengur gegn markmiðum laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.“

Veiðitímabil á Íslandi óvenju langt

Sjónum er þó ekki einungis beint að lundanum. „Helstu ógnir við sjófugla eru afföll sem meðafli í veiðarfærum, ofveiði fiskitegunda, ágengar framandi tegundir, veiði, mengun, loftslagsbreytingar, orkumannvirki og fuglaflensa. Flestar tegundir þurfa að kljást við margar af þessum ógnum samtímis yfir ævina. Að auki hafa bæst við nýlegri ógnir svo sem plastmengun í hafi og bein truflun af mannavöldum vegna frístundaiðkunar og náttúruferðamennsku. Þá eru stórfelld áform um byggingu víðfeðmra vindmyllugarða bein ógn ef ekki verður unnið sérstaklega að því að finna og hlífa svæðum sem mikilvæg eru fyrir sjófugla.“

Lundinn hefur margþætt gildi fyrir okkur Íslendinga. Hann hefur lengi verið hluti af menningararfi þjóðarinnar, veitt innblástur í listum og orðið andagift í sögum og hefðum. Mynd: Jóhann Óli

Þær Hólmfíður og Helga benda á að ein helsta ógnin sem hægt er að hafa bein og skjót áhrif á sé veiði. „Í dag eru skotveiðar hér á landi leyfðar á álku, langvíu, stuttnefju og lunda frá 1. september til og með 25. apríl. Háfaveiðar eru leyfðar á sömu tegundum frá 1. júlí til og með 15. ágúst. Teista var friðuð fyrir veiðum árið 2017 vegna fækkunar. Talið er að um 90 prósent af lundaaflanum veiðist í háfa. Ef litið er til stöðu svartfugla á íslenskum válista sést að stuttnefja, lundi og teista lenda í hættuflokkum og langvía telst vera í yfirvofandi hættu. Einungis álka virðist vera tegund sem ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af í dag en hún var þó í yfirvofandi hættu fyrir fáeinum árum.

Þrátt fyrir þessa bágu stöðu margra svartfuglastofna er veiðitímabil þessara tegunda á Íslandi óvenju langt samanborið við önnur lönd við Norður-Atlantshaf. Þar fyrir utan hafa rannsóknir leitt í ljós að veiðarnar ná inn á varptíma tegundanna og að veiðar undir lok veiðitímans hafa mun neikvæðari áhrif á stofnstærð en veiðar að hausti. Þá er hér talsvert um magnveiði, einkum vegna þess að svartfuglar eru eftirsóttir á sumum matsölustöðum,“ skrifa þær.

Ekki nóg að gefa út fagrar yfirlýsingar

Fjórar aðgerðir eru nefndar í greininni til að hafa áhrif á þessa stöðu sem nú er uppi. „Nauðsynlegt er að ráðast strax í aðgerðir og vert er að nefna fjóra þætti í því samhengi. Í fyrsta lagi þarf að stytta strax veiðitíma svartfugla í samræmi við fyrirliggjandi gögn þannig að veiðitíma svartfugla ljúki í síðasta lagi 15. janúar. Stytting veiðitíma svartfugla með þessum hætti væri til mikilla bóta í samhengi við sjálfbærni veiða og alþjóðasamninga um náttúruvernd. Hægt er að framkvæma þessa aðgerð þegar í stað.

Í öðru lagi þarf að breyta lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum í samræmi við tillögu Náttúruverndarstofnunar, til að hægt sé að grípa til verndandi aðgerða þótt veiðar flokkist sem hlunnindaveiðar. Í þriðja lagi þarf að setja strax sölubann á allar afurðir svartfugla, s.s. kjöt, egg og ham til uppstoppunar og í fjórða lagi þarf að friða lunda fyrir öllum veiðum í að minnsta kosti fimm ár. Að friðunartímabili loknu skuli endurmeta stöðuna.“

Að lokum benda höfundar á að ekki sé nóg að gefa út fagrar yfirlýsingar eða vera með háleit markmið. „Mikilvægt er að fylgja málum eftir – hratt og örugglega. Þess vegna skorar Fuglavernd á ráðherra málaflokksins og önnur stjórnvöld að ráðast strax í aðgerðir svo svartfuglar, þar með taldir lundarnir okkar, geti lifað hér áfram í sátt og samlyndi við okkur mannfólkið.“

Hægt er að lesa greinina í heild sinni á Vísi.is.

Mynd af Langvíu: Jóhann Óli Hilmarsson

Lómapar á tjörn í Friðlandinu í Flóa.

Vernda verður íslenskt votlendi betur en nú er gert

Fuglavernd stóð fyrir málþingi 31. október síðastliðinn þar sem eitt mikilvægasta og fjölbreyttasta vistkerfi landsins, votlendi Íslands, var í brennidepli. Um 60 manns mættu á málþingið og tæplega 160 horfðu á streymi frá Norræna húsinu. Tíu sérfræðingar á ólíkum sviðum héldu erindi og deildi Rán Flygering einstaklega áhugaverðri hugvekju með gestum. Rannveig Magnúsdóttir stýrði fundinum með miklum sóma.

Menja von Schmalensee formaður Fuglaverndar opnaði málþingið og benti á að stór hluti fugla byggði afkomu sína á votlendi og því væri vel við hæfi að Fuglavernd beitti sér fyrir verndun votlendis og miðlun þekkingar um það.

Á málþinginu var fjallað um ýmsa anga er tengjast votlendi og var meðal annars fjallað um nýjustu rannsóknir og reynslu fólks sem vinnur að verndun og endurheimt votlendis. Rætt var um fugla, gróður, jarðveg, kolefnisbúskap, fiska og landnotkun – og margt fleira.

Ályktun fundargesta

Í lok málþings ályktuðu fundargestir eftirfarandi, byggt á öllum þeim fróðleik sem fram hafði komið í erindum dagsins, sem og umræðum sem spunnust í kjölfar erinda:

  1. Íslensk votlendi eru sérstök og mikilvæg – og verður að vernda betur en nú er gert.
  2. Allt votlendi Íslands á að njóta verndar, óháð flatarmáli hvers svæðis. Nú þegar hefur um 70% votlendis á láglendi verið raskað og rannsóknir hafa sýnt að litlir votlendisblettir eru ekki síður mikilvægir en þeir sem stærri eru. Enn er votlendi raskað en nú er mál að linni.
  3. Auka þarf verulega endurheimt votlendis. Þótt einhver endurheimt hafi verið framkvæmd og ýmis verkefni séu fram undan, dugar það ekki til.
  4. Brot á náttúruverndarlögum verða að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hinn brotlega. Fráleitt er að þeir sem raska votlendi í leyfisleysi þurfi ekki að sæta viðurlögum.
  5. Ábyrgðartegundir Íslands, sem og tegundir í hættuflokkum á íslenskum válista, verða að öðlast lagalega stöðu sem tryggir betur vernd þeirra og búsvæða þeirra, þar á meðal votlenda.

Einnig vildu fundargestir koma eftirfarandi hvatningum á framfæri:

  1. Opinberar stofnanir á sviði náttúruverndarmála eru hvattar til að auka samstarf, samtal og samráð sín á milli.
  2. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er hvattur til að standa með náttúrunni.

Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér fyrir neðan:

 

 

Hér má sjá myndir frá málþinginu:

Hennar keisaralega hátign, Takamado prinsessa frá Japan

Prinsessa heilsar upp á íslenska fugla

Fuglavernd fékk þann heiður síðastliðinn föstudag að fara með hennar keisaralegu hátign Takamado, prinsessu frá Japan, í fuglaskoðun um Reykjanesskaga. Hólmfríður Arnardóttir framkvæmdastjóri Fuglaverndar, ásamt Sigurjóni Einarssyni fuglaljósmyndara og Arnóri Þóri Sigfússyni dýravistfræðingi, slógust í för með prinsessunni og sáu ýmislegt forvitnilegt á ferð sinni um skagann. 

Prinsessan var stödd á Íslandi vegna þings Hringborðs norðurslóða sem haldið var í síðustu viku þar sem yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum tóku þátt en hún flutti ávarp við upphaf þingsins.

Áhugasamur fuglaljósmyndari

Takamado prinsessa er heiðursforseti Alþjóðlegu fuglaverndunarsamtakanna (BirdLife International) og er sendiherra fugla og náttúru. Hún hefur verið ötull stuðningsmaður samtakanna í Asíu og víðar. Sjálf er hún fuglaljósmyndari og hefur gefið út fjölda bóka um viðfangsefnið. 

Föruneyti prinsessunnar fór um Hafnir, Sandgerði, Garðskagavita og Fitjar í Njarðvíkum. Það sem helst vakti athygli prinsessunnar voru rjúpur á vappi á milli Hafna og Sandgerðis þar sem hún náði mynd af þeim í vetrarbúningi. Einnig náði prinsessan að taka myndir af svartbökum og ungum bjartmáfum, sem og rauðhöfðaöndum og hettumáfum í Fitjum og hópi heiðlóa í vetrarbúningi, sem hverfur brátt á braut til heitari landa.

Mynd af hennar hátign, Takamado: Sigurjón Einarsson

 

Prinsessan Takamado fór í fuglaskoðun um Reykjanesskaga með Fuglavernd. Hér stillir hún sér upp með Hólmfríði Arnardóttur framkvæmdastjóra Fuglaverndar, Sigurjóni Einarssyni fuglaljósmyndara og Arnóri Þóri Sigfússyni dýravistfræðingi.
Fuglaskoðun 11. október 2025 Mynd: Bára Huld Beck

Vel heppnuð fuglaskoðun að baki

Fuglavernd stóð fyrir fuglaskoðun á Alþjóðlegum degi farfugla 11. október síðastliðinn. Fuglaskoðarar hittust á bílastæðinu hjá Garðskagavita á Reykjanesskaga þar sem margt var um manninn. Til tíðinda dró þegar aðrir fuglaskoðarar mættu á svæðið vígbúnir sjónaukum og myndavélum og greindu frá því að vaðlatíta (Calidris fuscicollis) hefði sést á svæðinu. Þeir bentu á tvær vaðlatítur sem vöppuðu í fjörunni ásamt sanderlum, tildrum og sendlingum. Vaðlatítur verpa í Kanada og Alaska en eiga hins vegar vetursetu í Suður-Ameríku. Þær flækjast hingað til lands endrum og sinnum svo fuglaskoðarar duttu í lukkupottinn við þessa sjón. 

Gengið var að vitanum og meðfram ströndinni þar sem sjá mátti hvítmáfa, silfurmáfa og súlnakast í fjarska.

Næst var förinni heitið á Hvalsnes í hádegismat og þar á eftir í Sandgerði þar sem meðal annars mátti sjá heiðlóur í vetrarbúningi undirbúa sig fyrir farflugið yfir Atlantshafið. Fuglaskoðuninni lauk í Fitjum í Njarðvíkum. Þar er fuglaskoðunarhús sem Fuglavernd mælir með að fuglaskoðarar nýti. Þar mátti sjá álftir með uppkomna unga og mikið af rauðhöfðaöndum.

Þrátt fyrir haustveður og sunnanátt þá skemmtu fuglaskoðarar sér konunglega og þakkar Fuglavernd öllum þeim sem mættu.