Tekið til hendinni í Vatnsmýrinni

Sjálfboðaliðar tóku til hendinni í blíðskaparveðri um síðustu helgi í Vatnsmýrinni í Reykjavík, undir leiðsögn þeirra Ólafs Karls Nielsen, öflugs vistfræðings og fyrrverandi formanns Fuglaverndar, og Ólafs Einarssonar, líffræðings og kennara.

Alls tóku tólf sjálfboðaliðar þátt í tiltektinni. Þeir tíndu rusl og komu fyrir trjágreinum á tjarnarbökkum sem Reykjavíkurborg lagði til. Markmiðið var að bæta aðgengi fugla að tjörnunum og styrkja bakkana til að draga úr rofi.

Vel var hugsað um mannskapinn. Fuglavernd og veitingastaðurinn Plantan buðu upp á hádegismat og Norræna húsið opnaði kaffistofu starfsmanna sinna fyrir hópinn.

Bleshæna heiðraði með nærveru sinni

Veðrið lék við sjálfboðaliða að þessu sinni þrátt fyrir svalan norðanandvara og gekk verkið afar vel. Þá var sérstaklega ánægjulegt að magn rusls reyndist minna en oft áður.

Gestur svamlaði á einni tjörninni á meðan tiltekt stóð, nánar tiltekið bleshæna (Fulica atra) sem er flækingur af relluætt.

Fuglavernd þakkar sjálfboðaliðum kærlega fyrir framlag sitt og fyrir að hjálpa til við að gera Vatnsmýrina fýsilega fyrir vorið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *