Lundinn er ein þeirra íslensku fuglategunda sem metinn er í bráðri hættu á Válista fugla 2018 sem Náttúrufræðistofnun Íslands tekur saman.

Flokkun IUCN á hættumati á útdauða.

Verndum lifandi lunda

Árið 2018 sendi stjórn Fuglaverndar áskorun til Umhverfis- og auðlindaráðherra um aðgerðir til varnar svartfuglum sjá Um Fuglavernd> Ályktanir.

Sama ár fengum við styrk til að hrinda í framkvæmd árvekniátaki um lundann þar sem markhópurinn eru erlendir ferðamenn, sem margir hverjir heimsækja Ísland í þeirri von að sjá lunda með eigin augum. Í því skini var settur upp vefur tileinkaður lundanum og lífsháttum hans ásamt umfjöllun um hvaða ógnir steðja að honum eins og loftslagsbreytingar og ósjálfbærar veiðar.

Vefurinn er enn sem komið er á ensku, sjá: ProtectPuffins.is