Umræðan um loftslagsmál og umhverfismál vekja oft upp spurninguna: Hvað get ég gert? – Okkar svar er: Leggðu þitt af mörkum og taktu þátt í Fuglavernd.
Fuglavernd eru frjáls félagasamtök og reiða sig á árgjöld félaga sinna. Félagsgjöldin standa straum af grunnrekstri félagsins án þess að vera tengd ákveðnum verkefnum sérstaklega.
Hægt er að velja um fjölskylduaðild, einstaklingsaðild eða aðild fyrir ungliða og/eða eldri borgara.
Félagsmenn Fuglaverndar fá:
- Áskrift að tímaritinu Fuglar
- Frítt inn á viðburði á vegum félagsins
- Forgang í fuglaskoðunarferðir á vegum félagsins
Þeir sem gerast félagar í byrjun árs 2018 fá einnig nýja útgáfu af bæklingnum Garðfuglar, að verðmæti 1.000 krónur. Fimmtudagskvöldið 25. janúar er frítt inn fyrir félagsmenn á Fræðslukvöld um garðfugla.
Gerast félagi í Fuglavernd