Hrafn

Hrafn
Hrafn. LJósmynd: Ólafur Einarsson

Hrafn ber fræðiheitið Corvus corax og er af hröfnungaætt (Corvidae).

Fræðiheiti: Corvus corax.

Ætt: Hröfnungaætt (Corvidae).

Einkenni: Hrafninn er stærstur spörfugla og er kolsvartur að lit.

Búsvæði: Hrafninn verpur víða um land og sum staðar í hálendinu. Hreiðrið er yfirleitt í klettum en geta einnig búið til hreiður á ýmsum mannvirkjum.

Far: Staðfugl.

Varptími: Frá miðjum apríl og klekjast ungar í maí. Verpur einu sinni.

Fæða: Af ýmsum toga og eru þeir fljótir að nýta sér fæðuppsprettur, s.s. hræ, egg, ýmis smádýr. Nýtir sér fuglafóður, sérstaklega kjöt og matarafganga og er eitthvað um það að fólk gefi hröfnum.

Stofnstærð: Hrafninn er algengur og áberandi víða um land og var stofninn metinn 2.000 pör kringum 1985 (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 1992). Hröfnum hefur fækkað á á NA-landi (María Harðardóttir og Ólafur K. Nielsen 1999), sums staðar við Breiðafjörð og á Reykjanesskaga (Náttúrufræðistofnun, óbirt gögn).

Válisti: Hrafn (Corvus corvax) VU í nokkurri hættu.

EVRÓPA (VARPPÖR) ÍSLAND (VARPPÖR) ÍSLAND VETUR (EINSTAKLINGAR)
450.000-970.000 Um 2.000 10.000-13.000