Ályktanir og umsagnir
Hér eru birtar ályktanir og umsagnir sem Fuglavernd hefur sent til stjórnvalda, ríkisstofnana og sveitarfélaga um málefni sem snerta búsvæða- og tegundavernd fuglastofna á Íslandi. Listinn er ekki tæmandi og síðan er í sífelldri vinnslu.
Að auki tekur Fuglavernd þátt í hagsmunagæslu með samstarfi við önnur samtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar.
2024
Sent 14. nóvember 2024 til Borgarbyggðar: Athugasemdir Fuglaverndar vegna endurskoðunar aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037.
Sent 30. september 2024 til íbúafundar í Grímsey vegna umræðu um að leyfa gæludýrahald í Grímsey: Gæludýrahald í Grímsey – ályktun Fuglaverndar.
Sent 3. maí 2024 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis; Umsögn Fuglaverndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku). 154. löggjafarþing 2023–2024. Þingskjal 1339 – 900. mál.
Sent 14. febrúar 2024 til Skipulagsstofnunar, athugasemd við; Stækkun íbúðasvæðis og breytt lega Hringvegar við Borgarnes– mál nr. 723/2023.
Sent 23. janúar 2024 til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um frumvarp til laga um vindorku. Mál nr. S-1/2024. Sent 17. janúar 2024 til Matvælaráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um sjávarútvegsstefnu og frumvarp til laga um sjávarútveg. ál S-245 /2023
Sent 17. janúar 2024 til Matvælaráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um sjávarútvegsstefnu og frumvarp til laga umsjávarútveg. Mál nr. S-245/2023.
Sent 9. janúar 2024 til forsætisráðherra. matvælaráðherra, utanríkisráðherra og umhverfis-, orku og loftslagsráðherra: Ákall frá Náttúruverndarsamtök Íslands, SVIVS, NASF – Norður-Atlantshafslaxsjóðurinn, Fuglavernd og Landvernd um verndun djúpsjávar vegna fyrirætlanir um námugröft á djúpsævi.
2023
Sent 20. desember 2023 til Umhverfis-, orku- og loftslangsráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um “Áform um frumvarp til laga um vindorku”
Sent 14. desember 2023 til Umhverfisstofnunar: Veiðstjórnun rjúpu – afstaða Fuglaverndar
Sent 23. nóvember 2023 til Skrifstofu Alþingis: Umsögn um tillögu til þingsályktunar um leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma – 49. mál.
- Eftirfarandi þrjú félög sendu einnig athugasemdir vegna málsins, Fuglavernd er aðili að BirdLife International:
–BirdLife International: Concerns over proposed resolution to authorize hunting of bird species.
–The Wildfowl and Wetland Trust: Parliamentary resolution proposal 49: Leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma (parliamentary resolution on hunting permits for swans, greylag geese, pink-footed geese and barnacle geese outside normal hunting periods).
–RSPB Scotland: Parliamentary resolution proposal 49: Leyfi til veiða á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma (parliamentary resolution on hunting permits for swans, greylag geese, pink-footed geese and barnacle geese outside normal hunting periods).
Sent 9. nóvember 2023 til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra : Umsögn Fuglaverndar um erindi Orkubús Vestfjarða um að veitt verði leyfi til virkjunar vatnasvæðis friðlandsins í Vatnsfirði. Tilvísun í mál: UMH23020100
Sent 23. október 2023 til Atvinnuveganefndar: Umsögn Fuglaverndar um ”Bann við hvalveiðum, 99. mál, lagafrumvarp ,154. löggjafarþing 2023–2024, þingskjal 99”
Sent 8. ágúst 2023 til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis: Umsögn vegna máls nr. 144/2023 í samráðsgátt – Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum.
Sent 5. júní 2023 til Ísafjarðarbæjar: Athugasemdir: Aðgerðir gegn kríuvörpum á vegum Ísafjarðarbæjar.
Sent 14. mars 2023 til Snæfellsbæjar: Umsögn Fuglavernar á aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015-2031 Hellissandur og Rif, sjóböð í Krossavík, Hellissandi og nýtt deiliskipulag Krossavíkurböðin Hellissandi.
Sent 10. mars 2023 til Vegagerðarinnar, Innviðaráðuneytis , Umhverfis-, orku- loftslagsráðuneytis og Breiðafjarðarnefndar: Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við tilmælum Fastanefnd Evrópusáttmálans um vernd villtra dýra og plantna og búsvæða þeirra og hugsanleg neikvæð áhrif nýrra vegamannvirkja í og í grennd við Friðland Breiðafjarðar
2022
Sent 26. október 2022 til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um Grænbók um líffræðilega fjölbreytni íslenskra vistkerfa
Sent 5. október 2022 til Umhverfisstofnunar: Fuglavernd mótmælir harðlega veiðráðgjöf UST um fjölgun á veiðidögum á rjúpu.
2021
Sent 10. desember 2021 til Umhverfisstofnunar: Mál er varðar auglýsingu um friðlýsingu Bessastaðaness
Sent 11. október 2021 til Skútustaðahrepps: Athugasemdir við breytingar á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 og drög að deiliskipulagi Skjólbrekku við Skútustaði
Sent 4. október 2021 til Gunnars Einarssonar bæjastjóra Garðabæjar: Athugasemdir Fuglaverndar og Landverndar við skipulag á Álftanesi – áform um golfvöll á Norðurnesi
Sent 31. ágúst 2021 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis: Umsögn um mál nr. 160/2021, „Breyting á reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum“ þar sem lögð er til breyting á veiðitíma helsingja
Sent 18. júní 2021 til verkefnisstjórnar um landsáætlun í skógrækt: Umsögn um drög að landsáætlun í skógrækt 2021-2031
Sent 17. júní 2021 til Umhverfis- og auðlindaráðherra frá BirdLife International: Adverse biodiversity impacts of the draft Icelandic nation-wide plan for forestry
Sent 29.apríl 2021 til Nefndarsviðs Alþingis: Umsögn Fuglaverndar um þingsályktunartillögu um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707 mál.
Sent 11. febrúar 2021 til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur: Varðar auglýsta tillögu að endurnýjun starfsleyfis fyrir Skotfélag Reykjavíkur á Álfsnesi.
Sent 9. febrúar 2021 til Nefndarsviðs Alþingis: Umsögn Fuglaverndar um frumvarp til laga um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, 368. mál.
Sent 28. janúar 2021 til nefndasviðs VSÓ ráðgjafar: Umsögn Fuglaverndar um drög ad tillögu að matsáætlun -_Færsla hringvegar(1) um Mýrdal.
2020
Sent 24. nóvember 2020 til nefndasviðs Alþingis: Fuglavernd mótmælir harðlega tillögu til þingsályktunar um að leyfa veiðar á álft, grágæs, heiðagæs og helsingja utan hefðbundins veiðitíma.pdf
Sent 20. nóvember 2020 til Árborgar: Fyrirhugaðri efnislosun Árborgar í votlendi við Ölfusá mótmælt.pdf
Sent 16. nóvember 2020 til Mannvits: Umsögn um matsáætlum á umhverfisáhrifum vegna vindmyllugarðs í landi Grímsstaða í Meðalandi, Skaftárhreppi.
Sent 4. nóvember 2020 til verkefnastjórnar landsáætlunar um skógrækt: Spurningar og svör Fuglaverndar um landsáætlun í skógrækt.pdf
Sent 14. október 2020 til Hafnarfjarðarbæjar: Fyrirhuguðum framkvæmdum við vesturjaðar friðlandsins við Ástjörn mótmælt.pdf
Sent 31. ágúst 2020 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis: Umsögn Fuglaverndar um drög að frumvarpi til laga um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og villtra spendýra, mál nr. 130/2020, birt á samráðsgátt 08.07.2020
Sent 30. júní 2020 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis: UMSÖGN UM „DRÖG AÐ REGLUGERÐ UM (1.) BREYTINGU Á REGLUGERÐ NR. 80/2016 UM VELFERÐ GÆLUDÝRA“. MÁL NR. 114/2020.
Sent 22. apríl 2020 á Degi jarðar til Umhverfis- og auðlindaráðherra: Áætlanir um byggingu alþjóðlegs flugvallar við ósa Tagus-árinnar í Portúgal.pdf
Sent 18. apríl 2020 til Úrskurðarnefndar Umhverfis- og auðlindamála: Kæra um ákvörðun sveitarstjórnar Reykhólahrepps um að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til byggingar Vestfjarðavegar, svonefnda Þ-H leið (um Teigsskóg).
Sent 14. apríl 2020. Bréf frá stjórn Fuglaverndar til forseta Portúgal og forsætisráðherra Portúgal þar sem bent er á þá hættu sem steðjar að mikilvægu fuglasvæði í Portúgal. Þetta svæði eru ósar Tagus-árinnar við Lissabon. Áætlanir eru um byggingu flugvallar í ósnum (Montijo Airport). SPEA systurfélag Fuglaverndar í Portúgal hefur beitt sér hart gegn þessum fyrirhuguðu framkvæmdum og stendur í málaferlum vegna þeirra. Sjá nánar á vef þeirra: http://www.spea.pt/en/news/airport-proposal-threatens-one-of-the-most-important-wetlands-in-europe/. Þá stendur systurfélag okkar í Hollandi fyrir undirskriftasöfnun: https://www.vogelbescherming.nl/petitie-grutto-lissabon
Sent 31. janúar 2020 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Umsögn um landsáætlun í skógrækt – drög að lýsingu.pdf Sjá einnig í Samráðsgátt stjórnvalda.
Sent 20. janúar 2020 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Umsögn um drög að frumvarpi til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða.pdf Sjá einnig í Samráðsgátt stjórnvalda.
Sent 20. janúar 2020 til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Umsögn um drög að frumvarpi til laga um Hálendisþjóðgarð.pdf. Sjá einnig í Samráðsgátt stjórnvalda.
Sent 16. janúar 2020 til Skipulagsstofnunar. Ályktun stjórnar Fuglaverndar um vindmyllur.
2019
Sent 19. desember til Umhverfis- og auðlindaráðherra: Umsögn um mál nr. 301/2019 – Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Sent 26. ágúst 2019 til forsætisráðherra Íslands, Katrínar Jakobsdóttur: Náttúruverndarsamtök skora á forsætisráðherra að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.pdf
Sent 13. ágúst 2019 sendum við inn umsögn um textadrög þverpólitískrar nefndar sem vinnur að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands um: skilgreiningu marka þjóðgarðsins, áherslur um skiptingu landsvæða í verndarflokka, umfjöllun um aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar.pdf. Bein slóð í samráðsgátt: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=1394&uid=c2a89add-dfbd-e911-9454-005056850474
Sent 22. maí 2019 til Nefndasvið Alþingis. Umsögn Fuglaverndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrskurðarnefnd umhverfis – og auðlindamála, nr. 130/2011 með síðari breytingum.pdf
Sent 25. febrúar 2019 til eftirlitsnefndar Árósasamningsins. Fuglavernd, Landvernd, Eldvötn, Fjöregg, Náttúruverndarsamtök Austurlands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Ungir umhverfissinnar sendu kvörtun um breytingar á lögum um fiskeldi sem brjóta gegn ákvæðum samningsins. 2019-02-25 Communication to the Aarhus Convention Compliance Committee.pdf
2018
Sent 21. desember 2018 til Skipulagsstofnunar. Athugasemdir Fuglaverndar við frummatsskýrslu um Hólasandslínu 3.pdf.
Svar 12. desember 2018 frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Svar: Fyrirspurn um áhrif aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum á náttúruvernd.pdf.
Sent 21. nóvember 2018 til Umhverfis- og auðlindaráðherra. Fyrirspurn um áhrif aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum á náttúruvernd.pdf.
Sent 12. nóvember 2018 til Umhverfis- og auðlindaráðherra. Áskorun um aðgerðir til varnar svartfuglum.pdf.
Sent 7. nóvember 2018 til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra. Umsögn um aðalskipulag Rangárþings ytra.pdf.
Sent 3. október 2018 til Umhverfis- og auðlindaráðherra. Fyrirspurn um magnveiði lunda í Málmey á Skagafirði.pdf.
Sent 2. apríl 2018 til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála: Fuglavernd kærir ákvörðun sveitastjórnar Bláskógabyggðar um að veita framkvæmdaleyfi fyrir Brúarvirkjun.pdf
Sent 14. mars 2018 til bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Bréf vegna kynningarfundar um möguleika virkjunar vindorku á Úthéraði.
2017
Sent 21. desember 2017 til fjárlaganefndar Alþingis. Áskorun um fjárveitingar til náttúrustofa
Sent 20. október 2017 til Skipulagsstofnunar. Athugasemdir vegna fyrirhugaðrar Svartárvirkjunar í Bárðardal
Sent 3. október 2017 til Skipulagsstofnuna. Athugasemdir Fuglaverndar við frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum Svartárvirkjunar í Bárðardal. Málið er í ferli hjá Skipulagsstofnun
Þann 1. september 2017 tók gildi reglugerð sem friðaði teistu fyrir skotveiðum. Sjá frétt: Teista friðuð fyrir skotveiðum.
Fundur með ráðherra: 16. júní Fuglavernd, Skotvís og Vistfræðifélag Íslands hittu Björt Ólafsdóttur Umhverfis- og auðlindaráðherra og afhentu henni Áskorun um friðun teistu (Ceppus grylle).pdf.
Sent 16. maí 2017 til Mennta- og menningarmálaráðherra og Alþingis. Um: Ályktun 16 náttúruverndarsamtaka um Náttúruminjasafn Íslands.pdf
Sent: 28. apríl 2017 til Umhverfisnefndar Alþingis. Athugasemdir við ályktun um stofnun starfshóps til að enduskoða lögjöf um villta fugla og spendýr.pdf
Sent 4. apríl 2017 til Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Umhverfisráðherra. Um: (Teigsskógur) Ályktun frá Fuglavernd vegna vegagerðar í Gufudalssveit.pdf.
Sent 6. janúar 2017 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með öðrum félögum og nokkrum einstaklingum. Krafa um að starfsleyfi Umhverfisstofnunar fyrir Háafell ehf. til sjókvíaeldis, útgefið hinn 25. október 2016, verði fellt úr gildi.pdf
Þann 20. júní 2017 kvað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð 6/2017 Háafell – sjókvíeldi þar sem málinu er vísað frá. Úrskurður 5/2017 Háafell – sjókvíeldi felldi úr gildi starfsleyfi Umhverfisstofnunar frá 25. október 2016 til Háafells.
2016
Sent skipulagsstofnun í desember 2016: (Teigsskógur) Athugasemdir við frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum: Vestfjarðavegur 60, veglína Þ-H.pdf.
Sent Garðabæ í nóvember 2016: Athugasemdir við aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030.pdf
Snemma árs 2016 benti Fuglavernd skrifstofu AEWA samningsins á mögulegt misræmi í skuldbindingum Íslands við samninginn um verndun búsvæða votlendisfarfugla, sem undirritaður var árið 2013, og stefnu íslenskra stjórnvalda í skógrækt. Varð það til þess að AEWA skrifstofan sendi hingað nefnd til að sannreyna hvort þetta misræmi væri til staðar og niðurstaðan var sú að svo væri.
Nefndin mælti með aðgerðum (Recommendation No.190 (2016) sem auðvelduðu ríkisstjórninni að uppfylla þær skuldbindingar hún hafði skrifað undir í apríl 2013. Aðgerðir þessar eru í 14. liðum og þar er m.a. vitnað í samskonar aðgerðaáætlun sem Bernar samningurinn í samvinnu við AEWA sendi ríkisstjórninni árið 2002 (Recommendation No.96) en hafði ekki verið farið eftir. Þessar aðgerðir vísa beint til praktískra aðgerða til að innleiða AEWA samninginn, bera kennsl á alþjóðlega mikilvæg búsvæða vatnafugla og hraða lagalegri vernd þeirra, útbúa skógræktarstefnu sem tekur mið af fuglavernd og náttúruvernd vistkerfa, og koma umhverfismati nýskógræktar í það ferli að virkt sé.
2015
Sent skipulagsstofnun í febrúar 2015: (Teigsskógur) Umsögn um endurupptöku úrskurðar um Vestfjarðaveg.pdf
Sent alþingi 8. október 2015: 2015_Umsögn_náttúruverndarlög nr. 60 – 2013 _með breytingafrumvarpi
2014
Sent umhverfis- og auðlindaráðuneyti 23. september 2014: Bréf til UAR um að beita sér fyrir friðlýsingu Lundeyjar á Kollafirði
Sent Reykjavíkurborg 10. febrúar 2014: Fuglavernd hvetur Reykjavíkurborg til að friðlýsa Akurey og Lundey
2013
Sent Reykjavíkurborg í desember 2013: Varðar umsókn Umhverfis og skipulagsviðs Reykjavíkurborgar um leyfi til andaræktunar við Reykjavíkurtjörn.
Sent umhverfis- og skipulagsnefnd Alþingis í desember 2013: Athugasemdir við frumvarp til laga um brottfall laga um náttúruvernd, nr. 60/2013 (Lagt fyrir Alþingi á 143. löggjafarþingi 2013–2014.)
2012
Sent Ramsar skrifstofunni í Swiss 2012. Kvörtun til Ramsar samningsins vegna áætlana um virkjunarframkvæmdir við Bjarnarflag.pdf
Svar Ramsar skrifstofunnar 2013. Ramsar Advisory Mission No. 76 Mývatn-Laxá region, Iceland (2013) Ramsar Site N° 167
Sent kærunefnd umhverfis- og auðlindamála í desember 2012 Kærð niðurstaða Skipulagsstofnunar um að fráveitulögn við orkuverið í Svartsengi skuli ekki vera háð mati á umhverfsisáhrifum.pdf
2011
Sent umhverfisnefnd Alþingis 30. maí 2011 Umsögn um þingsályktunartillögu um fullgildingu Árósasamningsins (þingmál nr. 708) og frumvarp um tengdar lagabreytingar.pdf
Sent samgöngunefnd Alþingis 18. maí 2011 (Teigsskógur) Umsögn vegna Frumvarps til laga um uppbyggingu á Vestfjarðavegi (veglagning út með Þorskafirði um Teigsskóg), 439. mál.pdf
2010
Fundur með umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, 24. nóvember 2010 Fundur með umhverfisráðherra um styttri veiðitíma svartfugls og gæsa og sölubann á villibráð.pdf
Sent Sandgerðisbæ 10. september 2010 Bréf til Sandgerðisbæjar, Athugasemdir við tillögu að nýju aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 2008-2024.pdf
Sent Mýrdalshrepp, 10. febrúar 2010 Bréf til Mýrdalshrepps, athugasemdir við aðalskipulags.pdf
Sent umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, 8. febrúar 2010 Minnisblað til umhverfisráðherra um vetrarveiði á gæsum og sölu á villibráð.pdf
2008
Sent umhverfisráðherra, Þórunni Sveinbjarnardóttur, 18. janúar 2008 Bréf til umhverfisráðherra: Sölubann á villigæsum.pdf
2007
Sent umhverfisráðherra, 1. nóvember 2007 Bréf til umhverfisráðherra: Sölubann á villtri gæs.pdf
Sent umhverfisráðherra, 7. september 2007 Bréf til umhverfisráðherra: Athugasemdir Fuglaverndar vegna umsagna um virkjun við Hnútu í Hverfisfljóti í Fljótshverfi.docx
Síðast breytt: 28. febrúar 2020