Þegar komið er sumar þá eru fjölmörg störf að vinna úti í náttúrunni í starfi Fuglaverndar. Frá og með 11. júní til og með 11. ágúst er því stopul viðvera starfsfólks á skrifstofunni. Best er að hringja á undan sér til þess að tryggja að einhver sé við, í síma 562 0477.
Í júlí er skrifstofan lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks og á sama tíma verður ekki hægt að afgreiða pantanir sem gerðar eru í vefversluninni.
Fuglavernd skorar á kattaeigendur að halda köttum inni yfir varptíma fugla. Kettir eru öflug og afkastamikil rándýr sem höggva stór skörð í stofna fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert. Á varptíma er því mikilvægt að lausaganga katta sé takmörkuð og sérstaklega yfir nóttina. Bjöllur eru í sumum tilfellum betri vörn en engin en langbest er að halda þeim inni.
Kattarkragar
Þá hafa kattakragar verið að gefa góða raun við fælingarmátt. Kattarkragar eru í skærum litum og gera það að verkum að rándýrinu tekst síður að læðast að bráðinni, þar sem fuglar sjá skæra liti mjög vel.
Rannsóknir sýna að kettir með kraga drepa allt að 19 sinnum færri fugla en kettir sem eru ekki með kraga. Þá hafa kragar sem eru marglitir (regnbogalitir) gefið betri árangur en rauðir eða gulir.
Alþjóðlegi farfugladagurinn var laugardaginn 12. maí og Spóahátíð var einn af þeim viðburðum sem haldinn var víðs vegar um heiminn til að halda daginn hátíðlegan.
Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi hélt síðasta erindi dagsins um vernd spóans hér á landi.
Skrifað hefur verið undir stofnun Votlendissjóðsins. Tilgangur hans er að stuðla að endurheimt votlendis og draga með því úr losun gróðurhúsalofttegunda. Verndari sjóðsins er Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson. Kynningarfundur var haldinn á Bessastöðum þann 30. apríl 2018.
Votlendissjóðurinn er stofnaður um samfélagslegt verkefni sem hefur það að markmiði að fá fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að fjármagna endurheimt hluta þess votlendis sem þegar hefur verið raskað hérlendis. Víðtækt samstarf liggur að baki þessu verkefni svo sem Landgræðsla Ríkisins, Landbúnaðarháskólinn, Háskóli Íslands, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi, Vegagerðin, Fuglavernd, Landvernd, Klappir, Náttúrustofa Austurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, sveitarfélög, bændur og landeigendur.
Verkefnið verður unnið með hverju sveitarfélagi fyrir sig þar sem íbúar fá kynningu á verkefninu og landeigendur fá boð um að taka þátt. Sveitarfélagið Fjarðabyggð ríður á vaðið og verður þar tilraunaverkefni sem verður þróað áfram. Reynt verður að fá ríkið til að endurheimta votlendi á þeim ríkisjörðum sem ekki eru í notkun.
Ásbjörn Björgvinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðsins.
Fuglavernd eru aðilar að BirdLife International sem eru ein elstu náttúruverndarsamtök heims en sögu þeirra má rekja aftur til 1922.
Í samantekt BirdLife um ástand fuglastofna heimsins kemur m.a. fram að einn af hverjum átta fuglastofnum er talinn vera í útrýmingarhættu. Þrátt fyrir að fréttirnar séu slæmar þá er hægt að grípa til ýmissa ráða, um það má líka lesa í skýrslunni.
Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Helsti vorboði okkar er kominn á tilsettum tíma nú rétt fyrir páska, fyrstu lóurnar sáust í Flóanum í dag. Aðeins tvisvar sinnum hafa lóurnar komið seinna en í dag, 1999 og 2001, en meðalkomudagur þeirra 1998-2017 hefur verið 23. mars.
Lóan er einkennisfugl íslenskra móa og útbreiddur varpfugl um land allt og einnig á hálendinu. Lóan er vaðfugl sem verpur einkum á þurrum stöðum, mólendi og grónum hraunum. Hreiðrið er opin laut milli þúfna eða á berangri, klætt með stráum.
Um helmingur af heimsstofni lóunnar verpur hér á landi, eða um 300.000 pör, svo ábyrgð okkar gagnvart þessum vorboða er mikil og nauðsynlegt að vernda búsvæði hennar.
Vetrarheimkynnin eru í Vestur Evrópu, aðallega á Írlandi en einnig í Frakklandi, Portúgal og á Spáni.
Vegna hugmynda sem uppi eru um virkjun vindorku á Úthéraði sendi Fuglavernd Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs bréf þann 14. mars vegna kynningarfundar sem haldinn var þann 15. mars 2018.
Þar segir:
Fuglavernd lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af hugmyndum um vindmyllugarð á alþjóðlega mikilvægu fuglasvæði við Hól á Úthéraði. Reynsla erlendis frá hefur sýnt að auðugt fuglalíf og vindmyllugarðar fara ekki saman og áhrifin geta verið mjög alvarleg fyrir fugla.
Fuglalíf er mikið og fjölbreytt á Úthéraði (Guðmundur A. Guðmundsson o.fl. 2001) og þær tegundir varpfugla sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru lómur (220 pör), flórgoði (38 pör), grágæs (1.600 pör) og kjói (1.300 pör). Hið sama á við um grágæs á fjaðrafellitíma (7.700 fuglar) og fartíma (7.517 fuglar).
Ysti hluti Úthéraðs, votlendi og sandar í Hjaltastaðaþinghá, Húsey, Eylendið í Jökulsárhlíð, ásamt Egilsstaða- og Finnsstaðanesjum utan við Egilsstaði, eru á náttúruminjaskrá. Allt svæðið er á IBA-skrá.
Engin stefna hefur verið mörkuð um vindorkuvirkjanir á Íslandi og því réðst Landvernd í það verkefni að semja stefnu sem byggist á náttúruverndarsjónarmiðum með almannahagsmuni að leiðarljósi. Vonast er til að framkvæmdaaðilar og sveitarfélög geti nýtt sér þessa stefnumörkun til að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif slíkra framkvæmda og til að koma í veg fyrir að ráðist verði í byggingu vindorkuvirkjana á svæðum þar sem miklar líkur eru á að þær hafi veruleg neikvæð áhrif á viðkvæma náttúru landsins. Einnig vonast samtökin til að stefnan marki upphafið af almennri umræðu um málefnið hér á landi.
Landvernd leggst gegn vindorkuvirkjunum og –verum á mikilvægum fuglasvæðum (IBA svæðum) og hvetur til rannsókna á farleiðum fugla (þ.m.t. dægurfari) og varpstöðvum mófugla áður en slík mannvirki koma almennt til álita.
Almennt er þekking á farleiðum fugla hér á landi takmörkuð, hvort heldur sem er milli varp- og vetrarstöðva eða milli fæðustöðva og náttstaða (dægurfar). Hérlendis er mjög hár þéttleiki verpandi mófugla og þarf að huga að því við staðsetningu vindorkuvirkjana en mannvirkjagerð og hávaði getur haft veruleg áhrif á varp mófugla.
Verðlaun verða veitt í hverjum flokki, en aðalverðlaunin eru ljósmyndaferð til Rovaniemi í Finnlandi í fjórar nætur. Allar nánari upplýsingar eru á https://photocontest.arcticbiodiversity.is/. Skilafrestur er til 1. ágúst 2018.
Vikuna 19. – 24. febrúar var hér á landi Mark Day tengiliður okkar, við RSPB og BirdLife International. Um vinnuheimsókn var að ræða, þar sem RSPB hefur stutt við bakið á Fuglavernd með ýmsum hætti á undanförnum árum og kemur til með að gera áfram eins og fram kemur í þeirra stefnu.
RSPB eru ein rótgrónustu náttúruverndarsamtök Bretlands, stofnuð 1889. Hjá samtökunum starfar fjöldi sjálfboðaliða, verndarsvæði RSPB eru 180 talsins svo að það er heilmikill liðsstyrkur fólginn í því að vera í góðu samstarfi við þessa nágranna okkar.
Auk þess að funda með starfsmönnum og stjórn Fuglaverndar var einnig tækifæri til að hitta fulltrúa frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, Votlendissjóðnum, Landgræðslu Ríkisins og fleiri aðilum sem vinna í náttúruvernd á Íslandi. Einn dag vikunnar náðum við að fara út af skrifstofunni og funda, en veðrið var ekki sem ákjósanlegast til ferðalaga þessa vikuna þar sem hver lægðin kom á eftir annari.
Við náðum þó að líta í heimsókn á Friðlandið í Flóa sem við komuna skartaði sínu fegursta í vetrarríki. En skjótt skipast veður í lofti eins og við vitum sem búum á Íslandi og þegar við komum út úr fuglaskoðunarhúsinu var skyggni orðið afar takmarkað og sannkölluð hundslappadrífa. Þessi upplifun þótti alveg mögnuð.
Við notum vafrakökur og aðra mælingatækni til að bæta vafraupplifun þína á vefnum okkar, sýna persónulegt efni, greina umferð um vefinn og skilja hvaðan úr veröldinni við fáum heimsóknir á vefinn okkar. Persónuverndarstefna okkar tók gildi 20. júlí 2018.
Með því að velja OK samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum og öðrum rekjanleika.
OKNeiPersónuverndarstefna