Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Garðfuglahelgin 2021

29.01.2021 - 01.02.2021

Músarrindill © Sindri Skúlason

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun, þá höfum við útbúið:

Garðfuglar – Hjálparblað með myndum.pdf

sem hægt er að prenta út og nota við talninguna.

Skráning niðurstaðna

Þú getur valið þá leið sem þér hentar best til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Við mælum með rafrænni skráningu, þar sem gögnin eru þá slegin inn og fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum.

Garðfuglahelgin 2021, rafræn skráning athugana

Ef þú vilt heldur prenta út formið og senda, þá eru tvær útgáfur skjala í boði:

Garðfuglahelgin – eyðublað.pdf (92 kB) 

Garðfuglahelgin – eyðublað.docx (75 kB)

Útfyllt eyðublöð má senda í tölvupósti á gardfugl@gmail.com eða í bréfapósti til: Fuglaverndar, Hverfisgötu 105,101 Reykjavík.

Garðfuglar

Lestu meira um fóðrun garðfugla, garðyrkju í fuglagarðinum og garðfuglategundir. Í vefversluninni okkar fást bæði fuglafóður og fuglahús sem og bæklingurinn Garðfuglar.

Streymisfundur um framkvæmd Garðfuglatalningar

Fimmtudaginn 28. janúar kl. 17

Smelltu á hlekkinn til að tengjast:

https://us02web.zoom.us/j/88943208660?pwd=VnROYmJmblRkT2YwWjZTbnF1OGM1QT09

Allir velkomnir meðan Zoomrúm leyfir!

Details

Start:
29.01.2021
End:
01.02.2021
Event Category:

Venue

Landið allt

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website