Bendum á meistaraprófsvarnir í líffræði sem haldnar verða núna í maí þar sem rannsóknarefnið er fuglar. Bæði erindin eru á Íslensku en það eru þau Aðalsteinn Örn Snæþórsson með erindi um varpárangur og lífslíkur rjúpuhæna að sumri og Borgný Katrínardóttir með erindi um mikilvægi hálfgróinna áreyra á Íslandi fyrir spóa. Sjá dagana 18. og 29. maí í dagskrá félagsins og á vef Háskóla Íslands.
jan, 2012
Fuglavernd styður meirihluta svartfuglanefndar
Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar Umhverfisráðuneytisins.
Veiðar, þar með talin eggjataka, eru ekki sjálfbærar úr stofnum sem ná ekki að viðhalda stofnstærð sinni af einhverjum orsökum, t.d. vegna fæðuskorts. Hrun í varpstofnum margra íslenskra sjófuglastofna er staðreynd. Ástundun veiða úr hnignandi stofnum er siðlaus umgengni við náttúruna, óháð magni veiddra fugla. Veiðibann er eina siðlega viðbragðið við stofnhruni tegunda.
Það hljóta að vera hagsmunir allra sem nýta svartfugla að stofnarnir séu sterkir og sjálfbærir. Öll sérhagsmunavarsla getur spillt tiltrú almennings á siðferði veiðimanna og eru ívilnanir sem þeir krefjast á fyrirkomulagi veiðistjórnunar í fullri andstöðu við varúðarreglu sem leyfir sjófuglum að njóta vafans. Svartfuglar og ekki síst lundi gefa af sér miklar tekjur vegna ferðamanna sem koma til að skoða þessa fugla og þær tekjur hverfa þegar þeir grípa í tómt. Á myndinni má sjá stuttnefjur í bjargi. Varpstofn stuttnefju hefur minnkað um 44% á landsvísu á sl. 25 árum og um 95% á Reykjanesskaga.
Skoða tillögur hópsins á vef Umhverfisráðuneytisins
Ljósm:JÓH.