- This event has passed.
Lífveruleit (Bioblitz) í Grasagarðinum
06.05.2017 @ 11:00 - 12:30
FreeGrasagarður Reykjavíkur, Reykjavík iðandi af lífi og Fuglavernd bjóða gestum og gangandi í lífveruleit í Grasagarðinum. Gestir garðsins og sérfræðingar leita uppi plöntur, skordýr, fugla, fiska, mosa og fléttur til greiningar. Starfsfólk garðsins þekkir hinar 5000 tegundir plantna sem hefur verið plantað skipulega í garðinn en í garðinum leynist einnig heilmikið af öðrum plöntum og lífverum sem bíða uppgötvunar. Gestir eru hvattir til að taka með sér flórubækur, stækkunargler, kíkja og myndavélar.
Hvar: Grasagarðinum í Reykjavík
Hvenær: Laugardaginn 6. maí kl. 11
Hvað er lífveruleit?
Lífveruleit er viðburður sem leggur áherslu á að finna og greina eins margar tegundir og mögulegt er á ákveðnum afmörkuðum stað yfir ákveðinn stuttan tíma. Meðan á lífveruleit stendur sameinast vísindamenn, fjölskyldur, nemendur, kennarar og aðrir áhugasamir um að telja heildarfjölda platna, dýra, skordýra, fugla, fiska, mosa og annara lífvera sem lifa á svæðinu.
Lífveruleit skapar tækifæri fyrir fólk til að vera úti í náttúrunni og njóta hennar og fræðast líffræðilega fjölbreytni í bakgarðinum. Lífveruleitin er þannig verkfæri til að njóta fjölbreytninnar og vernda umhverfið á sama tíma.
Meira um BioBlitz