- This event has passed.
Garðfuglakönnun hefst
27.10.2019
fríttGarðfuglakönnun Fuglaverndar árið 2019 hefst sunnudaginn 27. október. Daginn áður, laugardaginn 26. október verður opið hús, fyrsti vetrardagur á skrifstofu Fuglaverndar.
Garðfuglakönnunin hefur verið gerð árlega allt frá 1994. Tilgangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með.
Þátttaka almennings í rannsóknum og vöktun leysir úr læðingi margfeldisáhrif, eykur þekkingu, á þátt í að breyta viðhorfi, eflir umhverfislæsi og leiðir til ábyrgrar hegðundar og aukinnar færni í umönnun náttúrunnar.
Frá því að athuganir hófust, veturinn 1994‒95, hafa verið skráðar 83 tegundir sem er hærri tala en fjöldi reglulegra varpfugla á landinu. Sautján af þessum tegundum hafa sést á hverju ári.