- This event has passed.
Alþjóðlegi farfugladagurinn – Spóahátíð í Kötlu jarðvangi
12.05.2018 @ 10:00 - 14:00
FríttLaugardaginn 12. maí 2018 er alþjóðlegur dagur farfugla sjá: http://www.worldmigratorybirdday.org/news/2017/towards-new-world-migratory-bird-day-2018
Í tilefni dagsins munu Fuglavernd, Náttúrufræðistofnun Íslands, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi og Katla jarðvangur í samvinnu efna til vettvangsferðar og fræðslu.
Árið 2018 verður alþjóðlegi farfugladagurinn tileinkaður spóanum á Íslandi. Spóinn er ein af ábyrgðartegundum okkar Íslendinga en hér verpir megnið af Evrópustofninum og líklega fyrirfinnst hvergi þéttara spóavarp. Spóinn hefur vetursetu í Vestur-Afríku en þangað flýgur hann alla jafna beint yfir opið haf án hvíldar.
Dagskrá
kl. 10:00 Fuglaskoðun á varpstöðvum spóans. Tómas Grétar Gunnarsson leiðir. Sjá staðsetningu á korti, hægt er að leggja bílum við veiðihús við Rangá.
kl. 12:00-13:00 Fjölskyldugrill við Hvol á Hvolsvelli (sjá staðsetningu) í boði SS.
kl. 13:00 Fræðsluerindi í Hvoli um spóann. Flutt verða fjögur stutt erindi af okkar helstu vísindamönnum um spóann.
- varp – Borgný Katrínardóttir líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands
- vetrarstöðvar – Camilo Carneiro doktorsnemi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi
- farflug – José Augusto Alves nýdoktor við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi
- vernd – Tómas Grétar Gunnarsson forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir