Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

5.000 tjaldar í Hvalfirði – fuglaskoðun

21. febrúar @ 12:00 - 17:00

Fuglaskoðun í Hvalfirði 21. febrúar 2026 kl. 12:00-17:00
Sólaruppprás: kl. 09:02
Háfjara um kl. 15:00

Eru 5.000 tjaldar í Hvalfirði?

Þegar rannsakað var hversu margir tjaldar hefðu vetursetu á Vesturlandi þá kom í ljós að um 5.000 tjaldar dvelja veturlangt í Hvalfirði. Við stefnum því á að skoða tjalda og auðvitað aðra fugla.

Farið verður á einkabílum

Hist verður í Mosfellsbæ eða þar sem hentar þátttakendum. Nánar um það þegar skráningu lýkur og vitað er hverjir koma og hvaðan.
Lagt af stað kl. 12:00 frá þeim stað sem sammælst verður um að hittast á.

Ef veður verður alveg ómögulegt, þ.e. rok og rigning eða hríð, fellum við niður ferðina.

Skráning er nauðsynleg

Skráið ykkur með nafni, netfangi og farsímanúmeri fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 19. febrúar með því að senda póst á netfangið fuglavernd@fuglavernd.is eða í síma 562-0477.

(Athugið að skilafrestur fyrir skráningu var ranglega skráðu sem fimmtudagur 15. febrúar í fréttabréfi. 19. febrúar er rétt dagsetning).

  • Verið vel klædd þannig að þið getið staðið og skimað eftir fuglum án þessa að krókna.
  • Sjónauki er nauðsynlegt verkfæri í ferðinni.
  • Hafið með ykkur nesti.
Skimað verður eftir fuglum við Grunnafjörð og Hvalfjörð

Háfjara er í kringum kl. 15:00.

Þeir sem eiga  ekki bíl munu væntanlega geta fengið far með öðrum.

Fararstjóri verður Vala Friðriksdóttir, líffræðingur og félagi í Fuglavernd, Helga Garðarsdóttir félagi í Fuglavend og Anna-María Lind starfsmaður á skrifstofu Fuglaverndar.

Details

  • Date: 21. febrúar
  • Time:
    12:00 - 17:00
  • Event Category: