Loading Events

« All Events

5000 tjaldar í Hvalfirði – fuglaskoðun

21. febrúar @ 12:00 - 17:00

Fuglaskoðun í Hvalfirði  2026.
Sólaruppprás: 09:02
Háfjara um kl. 15

Eru 5000 tjaldar í Hvalfirði?

Þegar rannsakað var hversu margir tjaldar hefðu vetursetu á Vesturlandi þá kom í ljós að um 5000 tjaldar dvelja veturlangt í Hvalfirði. Tjaldar og aðrir fuglar skoðaðir.

Farið verður á einkabílum. Hist verður í Mosfellsbæ eða þar sem hentar þátttakendum. Nánar um það þegar skráningu lýkur og vitað er hverjir koma og hvaðan.
Lagt af stað kl. 12 frá þeim stað sem sammælst verður um að hittast á.

Ef veður verður alveg ómögulegt þ.e. rok og rigning eða hríð fellum við niður ferðina.

 

Skráning er nauðsynleg.

-Skráið ykkur með nafni, netfangi og farsímanúmeri  fyrir kl. 15  fimmtudaginn 15. febrúar  með pósti til; fuglavernd@fuglavernd.is eða í síma 5620477.

-Verið vel klædd þannig að þið getið staðið og skimað eftir fuglum án þessa að krókna.

-Sjónauki er nauðsynlegt verkfæri í ferðinni.

-Hafið með ykkur nesti.

 

 

Skimað verður eftir fuglum við Grunnafjörð og Hvalfjörð.

Háfjara er í kringum kl. 15.

Þeir sem eiga  ekki bíl munu væntanlega geta fengið far með öðrum.

Fararstjóri verður Vala Friðriksdóttir, líffræðingur og félagi í Fuglavernd og Anna-María Lind starfsmaður á  skrifstofu Fuglaverndar.

Details

  • Date: 21. febrúar
  • Time:
    12:00 - 17:00
  • Event Category: