Loading Events

« All Events

Af fílum, flamingóum og furðufuglum

26. febrúar @ 20:00 - 22:00
ISK1000
Myndir frá Tanzaníu með Jóhanni Óla og Óla Einars

Á góu í fyrra héldu þeir félagar Jóhann Óli Hilmarsson og Ólafur Einarsson  í ævintýraferð til Tanzaníu. Þeir lentu í Arusha og héldu svo í marga misþekkta þjóðgarða

og friðlönd, eins og Arusha, Tarangire, Manyara og Ndutu þjóðgarðana. Síðast en ekki síst Serengeti og hinn víðkunna

Ngorongoro eldgíg, hann er 90 km í þvermál og dýralíf óvíða janfmikið á nokkrum stað í heiminum.

Dýralíf á þessum slóðum er einstakt, bæði spendýr og fuglar og ýmislegt fleira. Þeir félagar tóku aragrúa mynda af lífríkinu og munu þeir sýna úrval myndanna og segja ferðasöguna.

Myndasýningin verður í sal Arionbanka, Borgartúni 19, Reykjavík.

Aðgangur að myndasýningum Fuglaverndar er innifalinn í félagsgjaldi  einnig fyrir fjölskyldumeðlimi í fjölskylduaðild.

Aðrir áhugasamir borga 1000 kr.

 

Details

  • Date: 26. febrúar
  • Time:
    20:00 - 22:00
  • Cost: ISK1000
  • Event Category:

Venue

Organizer