Lómapar á tjörn í Friðlandinu í Flóa.

Vernda verður íslenskt votlendi betur en nú er gert

Fuglavernd stóð fyrir málþingi 31. október síðastliðinn þar sem eitt mikilvægasta og fjölbreyttasta vistkerfi landsins, votlendi Íslands, var í brennidepli. Um 60 manns mættu á málþingið og tæplega 160 horfðu á streymi frá Norræna húsinu. Tíu sérfræðingar á ólíkum sviðum héldu erindi og deildi Rán Flygering einstaklega áhugaverðri hugvekju með gestum. Rannveig Magnúsdóttir stýrði fundinum með miklum sóma.

Menja von Schmalensee formaður Fuglaverndar opnaði málþingið og benti á að stór hluti fugla byggði afkomu sína á votlendi og því væri vel við hæfi að Fuglavernd beitti sér fyrir verndun votlendis og miðlun þekkingar um það.

Á málþinginu var fjallað um ýmsa anga er tengjast votlendi og var meðal annars fjallað um nýjustu rannsóknir og reynslu fólks sem vinnur að verndun og endurheimt votlendis. Rætt var um fugla, gróður, jarðveg, kolefnisbúskap, fiska og landnotkun – og margt fleira.

Ályktun fundargesta

Í lok málþings ályktuðu fundargestir eftirfarandi, byggt á öllum þeim fróðleik sem fram hafði komið í erindum dagsins, sem og umræðum sem spunnust í kjölfar erinda:

  1. Íslensk votlendi eru sérstök og mikilvæg – og verður að vernda betur en nú er gert.
  2. Allt votlendi Íslands á að njóta verndar, óháð flatarmáli hvers svæðis. Nú þegar hefur um 70% votlendis á láglendi verið raskað og rannsóknir hafa sýnt að litlir votlendisblettir eru ekki síður mikilvægir en þeir sem stærri eru. Enn er votlendi raskað en nú er mál að linni.
  3. Auka þarf verulega endurheimt votlendis. Þótt einhver endurheimt hafi verið framkvæmd og ýmis verkefni séu fram undan, dugar það ekki til.
  4. Brot á náttúruverndarlögum verða að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hinn brotlega. Fráleitt er að þeir sem raska votlendi í leyfisleysi þurfi ekki að sæta viðurlögum.
  5. Ábyrgðartegundir Íslands, sem og tegundir í hættuflokkum á íslenskum válista, verða að öðlast lagalega stöðu sem tryggir betur vernd þeirra og búsvæða þeirra, þar á meðal votlenda.

Einnig vildu fundargestir koma eftirfarandi hvatningum á framfæri:

  1. Opinberar stofnanir á sviði náttúruverndarmála eru hvattar til að auka samstarf, samtal og samráð sín á milli.
  2. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er hvattur til að standa með náttúrunni.

Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér fyrir neðan:

 

 

Hér má sjá myndir frá málþinginu:

Dýradagurinn 22. maí

Dýradagurinn 22. maí 2019

Þann 22. maí 2019, á alþjóðlegum degi lífbreytileika, verður litrík skrúðganga barna og ungmenna sem hefur það að markmiði að vekja athygli á umhverfismálum og sérstaklega málefnum hafsins. Gangan hefst kl. 14:30 og gengið verður frá Laugarnesskóla yfir í Grasagarðinn.  

Skrúðganga og dagskrá

14:00-14:30 Nemendur klæða sig í búninga og safnast saman á skólalóð Laugarnesskóla

14:30-15:00 Gengið í skrúðgöngu inn í Grasagarðinn (götum verður lokað tímabundið)

15:00-15:30 Dagskrá í Grasagarðinum, stutt ávörp, hugvekja frá nemendum og skemmtun.

Dýradagurinn verður haldinn í fyrsta skipti á Íslandi 22. maí 2019 en þessi dagur er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni. Dýradagurinn er valdeflandi viðburður sem gefur nemendum tækifæri til að læra um og vekja athygli á m.a. loftslagsbreytingum, plastmengun og fjölbreytni lífríkisins. Gengið verður í litríkri skrúðgöngu frá Laugarnesskóla yfir í Grasagarðinn þar sem skipulögð dagskrá verður. Viðburðurinn er opinn öllum og er liður í 50 ára afmælisdagskrá Landverndar.

Þema göngunnar er málefni hafsins og er viðburðurinn settur upp sem blanda af umhverfisfræðslu og skapandi vinnu með börnum og ungmennum sem m.a. felst í búninga- og grímugerð úr efnivið sem annars væri fleygt.

Úr hugmyndasmiðju Dr. Jane Goodall

Dýradagurinn er byggður á hugmynd frá Roots & Shoots samtökum Jane Goodall í Taiwan og Argentínu sem kallast „Animal Parade“. Jane Goodall sjálf sýnir þessum viðburðum alltaf mikla athygli og stefnir á að vera viðstödd á Dýradeginum á Íslandi vorið 2020.

Samstarfsaðilar í verkefninu eru Landvernd, Reykjavíkurborg, Grasagarður Reykjavíkur, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Fuglavernd, Norræna húsið, Barnamenningarhátíð, Myndlistaskóli Reykjavíkur og Ragnheiður Maísól Sturludóttir, listakona.

Viðburðurinn: Dýradagurinn

Viðburðurinn á Facebook: Dýradagurinn