Í tilefni af Alheimshreinsunardeginum ætla Plastlaus september og Blái herinn að taka höndum saman og standa að hreinsun og fræðslu um plastvandann.
Við hittumst í Sjávarklasanum kl. 13 og fólk getur valið sér svæði í nágrenninu til að hreinsa. Við hittumst aftur kl. 14:30 í Sjávarklasanum og fáum okkur hressingu saman. Einnig geta áhugasamir fræðst um hvernig draga megi úr plastnotkun í daglegu lífi.
MUNUM EFTIR FJÖLNOTA POKA OG FJÖLNOTA HÖNSKUM (GARÐHÖNSKUM). KLÆÐUM OKKUR EFTIR VEÐRI.
Í tilefni af Alheimshreinsunardeginum 21. september munu Blái herinn, Björgunarsveitin Ársæll og hvalaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík standa að strandhreinsun í Akurey og Engey á milli kl. 9:00 – 14:00. Mæting sjálfboðaliða er við smábátahöfnina við Norðurbugt (bak við Marshallhúsið) kl. 9:00. Hressing í Sjávarklasanum 14:30.
Landvernd, Blái herinn, Plastlaus september, JCI Ísland og plokkara hreyfingin sjá um undirbúning alheimshreinsunar á Íslandi en þann 15.september munu sjálboðaliðar í 150 löndum sameinast í að hreinsa heiminn í nafni átaksins Let´s Do It! World. Við hvetjum fólk til að skipuleggja sína eigin hreinsun og gera sitt til þess að minnka rusl og draga úr notkun einnota plastumbúða.
Hópar, einstaklingar og fyrirtæki eru hvött til að TAKA ÞÁTT og skipuleggja eigin hreinsun og skráðu hana á hreinsumislands.is
Öll sveitarfélög landsins eru hvött til að standa við bakið á sínum íbúum. Hafðu samband við þitt sveitarfélag til þess að athuga fyrirkomulag ruslasöfnunar.
Sendiráð Bandaríkjanna og Blái herinn bjóða þér að taka þátt í árlegum strandhreinsunardegi föstudaginn 31. ágúst á Víðisandi, Ölfusi.
Við höldum áfram að sameinast við að hreinsa fjörur landsins og viljum bjóða ykkur að vera með í þessu frábæra verkefni þar sem Bandaríkin og Ísland taka höndum saman og gera umhverfið betra.
Sendiráðið býður upp á hressingu á staðnum
Því er mikilvægt að staðfesta þátttöku sem fyrst, svo hægt sé að áætla hvað við þurfum mikið af mat og drykk.
Þetta er fjórða árið sem við munum vinna saman að því að setja þennan mikilvæga atburð og það er frábært tækifæri til að komast út í náttúruna, gefa til baka og sýna fram á forystu í umhverfisvernd.
Mælst er til þess að fólk sameinist í bíla til þess að koma sér til og frá staðnum. Við mælum með að fara frá Reykjavík klukkan 09:00 á föstudagsmorgni til að hefjast handa kl. 10:00. GPS hnitin fyrir Sandvík eru: 63°51’17.6 “N 22°41’28.7″W.
Hreinsað verður fram að hádegisverði sem bandaríska sendiráðið býður upp á. Atburðurinn ætti að klárast klukkan 14:00.
Klæðið ykkur eftir veðri og vindum. Við hvetjum sem flesta til að taka þátt í þessari mikilvægu samfélagsþjónustu. Saman getum við unnið að því að varðveita og endurheimta náttúru Íslands.
Frá ráðhúsi Reykjavíkur verður boðið upp á sætaferðir, endilega bókið sem fyrst þar sem sætaframboð er takmarkað.
Við notum vafrakökur og aðra mælingatækni til að bæta vafraupplifun þína á vefnum okkar, sýna persónulegt efni, greina umferð um vefinn og skilja hvaðan úr veröldinni við fáum heimsóknir á vefinn okkar. Persónuverndarstefna okkar tók gildi 20. júlí 2018.
Með því að velja OK samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum og öðrum rekjanleika.
OKNeiPersónuverndarstefna