Ljósmynd Eyþór Ingi Sigurðsson.
maí, 2015
Fuglaskoðun á Álftanesi um helgina
Ljósmynd Eyþór Ingi Sigurðsson.
Á sunnudagsmorgun kl. 11 verður boðið upp á fuglagöngu í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal en í garðinum er fjölskrúðugt fuglalíf. Hannes Þór Hafsteinsson, garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður,leiðir gönguna. Hannes mun fræða gesti um þær fuglategundir sem fyrir augu ber og auk þess skoða hvaða tegundir plantna laða að fugla. Gestum er bent á að gaman getur verið að taka með sér sjónauka í gönguna.
Mæting við aðalinnganginn kl. 11. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
JÓH tók þessa mynd af auðnutittlingi.
Aðalfundur félagsins verður haldinn 16. apríl 2015 og mun erindi fundarins fjalla um forgangsröðun rannsókna og veiðistjórnunar á íslenskum fuglum. Veiðiálag og stofnþekkingu. Erpur S. Hansen, Náttúrustofu Suðurlands flytur.
Í erindinu eru teknar saman frumniðurstöður rannsókna á veiðiálagi og stofnþekkingu þeirra 30 fuglategunda sem leyft er að veiða hérlendis. Veiðiálag er reiknað út frá tiltækri stofnþekkingu og lagt til grundvallar forgangsröðun fyrir bæði rannsóknir og veiðistjórnun. Reiknaður var veiðistuðull með svo kallaðri „Potential Biological Removal“ aðferð (PBR) [1] fyrir 29 tegundir (veiðitölur vantar fyrir skúm). Ef PBR er 1 eða lægri, þá telst veiðin sjálfbær. Veiðiálag (veiði/PBR) er skilgreint hér sem hlutfall af skráðri meðalveiði 2004-2013. Þessi aðferð hentar þegar þekkingu á lýðfræði tegunda er ábótavant sem á við um margar tegundir hérlendis. Einnig var reiknuð hlutfallsleg breyting á meðalveiði allra tegunda fyrir og eftir 2003 (veiðitölur frá Umhverfisstofnun). Athygli vekur að meðalveiði milli þessara tveggja tímabila hefur minnkað um 40% eða meira hjá 17 tegundum (89% tegunda). Þessi samdráttur stafar að öllu jöfnu af fækkun í stofni viðkomandi tegunda, minni sókn eða blöndu þessa tveggja. Tekið skal fram að túlkun veiðibreytinga er torveld sökum flókinnar skilgreiningar veiðistofna hjá farfuglategundum. Núverandi stofnástand aðeins sjö veiðitegunda er ákjósanlegt fyrir veiði og þolir aðeins heiðagæs talsverða aukningu á veiði. Rjúpa er ein þessara sjö tegunda og jafnframt eina dæmið hérlendis um veiði sé stjórnað eftir veiðiþoli. Stofnar 14 tegunda flokkast „í hættu“, flestir vegna mikils og langvarandi viðkomubrests, og eru margar sjófuglategundir þar á meðal. Einnig flokkast fimm tegundir „í hættu“ vegna þess hve veiðiálag er hátt sem aftur bendir sterklega til ofveiði. Fimm tegundir til viðbótar flokkast „í útrýmingarhættu“, þar af fjórar sem hafa verið ofsóttar sem meintir tjónvaldar (svartbakur, hvítmáfur, silfurmáfur og hrafn), auk teistu. Válistategundum sem nú eru veiddar fjölgar því úr fjórum í sjö og telja nú 23% veiðitegunda. Blesgæs hefur ein slíkra tegunda verið friðuð.
Kallað er eftir stefnumótun í veiðistjórnun sem byggir á vísindalegum grunni. Tegundir í útrýmingarhættu og á válista er eðlilegt að friða strax og meta þarf hvort meint tjón réttlæti veiði á viðkomandi tegundum. Þetta á við um fleiri tegundir sem ekki eru eins illa staddar, eins og t.d. hettumáf. Einhverjar rannsóknir eru stundaðar á flestum mikilvægustu veiðitegundum og ætti að efla þær með mælingum á fleiri lýðfræðilegum þáttum og forgangsraða með hliðsjón af veiðiálagi, alþjóðlegu mikilvægi o.s.frv. Veiðistjórnunarkerfið þarf að byggja á árlegri samantekt og úrvinnslu upplýsinga og fela í sér árlega endurskoðun veiðitímabila allra tegunda í ljósi þeirra upplýsinga.
Um “Potential Biological Removal” aðferðina má lesa hér: Peter W Dillingham & David Fletcher (2008). Estimating the ability of birds to sustain additional human-caused mortalities using a simple decision rule and allometric relationship. Biological Conservation 141: 1738-1792
Aðalfundur félagsins verður að þessu sinni fimmtudaginn 16. apríl 2015 kl. 17:00 og verður haldinn á Hverfisgötu 105- þar sem skrifstofa félagsins er til húsa. Frestur til að skila inn framboðum til stjórnarkjörs rann út 14. febrúar síðastliðinn og barst eitt framboð. Frestur til að skila inn breytingatillögum á samþykktum félagsins var 15. febrúar síðastliðinn en engar tillögur bárust. Erindi fundarins er um veiðiþol fuglategunda.
Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins þessi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
3. Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 8 gr.
4. Kosin stjórn samkæmt 5 gr. samþykkta félagsins.
5. Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara.
6. Ákvörðun árgjalds.
7. Önnur mál.
Fuglavernd, Canon og Nýherji verða með fræðslufund um fuglaljósmyndun fimmtudagskvöldið 19. mars 2015 ásamt því að sýna aðdráttarlinsur frá Canon. Þar munu bæði atvinnumenn og áhugafólk um fuglaljósmyndun veita fræðslu, en meðfram því að leggja áherslu á fuglavernd verður farið í tæknileg atriði sem og praktíska hluti, eins og t.d. hvernig er best að nálgast fugla í sínu náttúrulega umhverfi. Viðburðurinn fer fram í Nýherja, Borgartúni 37, og hefst kl. 19:30. Þátttaka er ókeypis en óskað er eftir skráningu (hér er linkur á skráningarsíðu). Jóhann Óli Hilmarsson fjallar um virðingu fyrir viðfangsefninu og kemur þar aðeins inná löggjöf um fuglavernd. Þá fjallar hann um góða staði til að ljósmynda fugla ásamt því að sýna myndir af fuglum í umhverfi sínu. Sindri Skúlason fer yfir listina að mynda fugla ásamt því að fara lauslega í tæknileg atriði og hvernig best er að nálgast fugla og hvað sé mikilvægt að hafa í huga við fuglaljósmyndun (hann tók myndina af flórgoðanum). Ásta Magnúsdóttir og Helga Guðmundsdóttir sýna valdar myndir og segja sögurnar á bak við þær. Nýherji hefur fengið lánaðar aðdráttarlinsur hjá Canon sem verða til sýnis, m.a. hina nýju EF 100-400mm f/4.5-5.6L IS II USM, EF 200-400mm f/4L IS USM Extender 1.4X, EF 500mm f/4L IS II USM o.fl. Skemmtilegur og spennandi viðburður fyrir alla áhugasama um fugla og fuglaljósmyndun!
Sem aðili að Fuglavernd færðu tímaritið Fugla sent heim að dyrum – átt kost á að sækja fyrirlestra og mynda-sýningar sem haldnar eru á vegum félagsins, ásamt fuglaskoðunarferðum og vettvangsfræðslu og svo tekurðu þátt í að fylgja eftir markmiðum félagsins; að vernda fugla og búsvæði þeirra. Sendu okkur netfangið þitt og við sendum þér tilkynningar um alla atburði á vegum félagsins.
Árgjöld í Fuglavernd skiptast niður í nokkra flokka og ef greitt er beint á reikning félagsins má setja aðild í skýringu:
Reiknisnúmer: 0301-26-22994 kt. 500770-0159
Tímaritið Fuglar kom fyrst út á 40 ára afmæli Fuglaverndarfélags Íslands (Fuglaverndar) árið 2003. Það hefur fest sig í sessi sem ársrit félagsins og er eitt af metnaðarfyllstu tímaritum sem gefin eru út á Íslandi um náttúru og umhverfi.
Tímaritinu Fuglar er dreift til um 1300 félaga í Fuglavernd, auk þess sem það liggur frammi á biðstofum lækna og stofnana og er afhent nýjum félögum við inngöngu.
Áskrift að Fuglum er aðeins möguleg með aðild að Fuglavernd.
Í Fuglum er fjallað um fugla, fuglavernd, fuglaskoðun og búsvæði fugla á léttan og aðgengilegan hátt. Efnistök eru fjölbreytt og lifandi. Greinahöfundar eru fuglafræðingar, náttúrufræðingar og fuglaskoðarar og blaðið prýðir einstakar ljósmyndir eftir landsþekkta náttúruljósmyndara.
Meðal efnis í þessu blaði er annáll sjaldgæfra varpfugla 2015 og annáll flækinga 2015. Fylgst með kríum og fjallað um liti krossnefja. Stór grein um Günter Timmermann fuglafræðing. Fjallað um garðfugla og fóðrun. Umfjöllun um lagalega stöða fugla á Íslandi og grein um ferð til Antarktíku og fleira.
Miðvikudaginn 25.febrúar segir Gunnlaugur Sigurjónsson áhugaljósmyndari frá, í máli og myndum, ferð sem farin var til Svalbarða sumarið 2013. Atburðurinn verður haldinn í Borgartúni 19 í húsakynnum Arion Banka og hefst kl. 20:30.
Gunnlaugur, Jóhann Óli Hilmarsson og Daníel Bergmann fóru sumarið 2013 með fjölþjóðlegum hópi ljósmyndara til Svalbarða. Sýndar verða myndir af landslagi, dýra- og fuglalífi Svalbarða. Í upphafi ferðar var nokkrum dögum eytt í nágrenni Longyearbyen og svo var farið í siglingu norður fyrir Svalbarða inn í hafísinn þar sem komist var í návígi við ísbirni og rostunga.
Sýningin hefst stundvíslega kl. 20:30 og er öllum opin svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra. Samkvæmt venju verður hægt að nálgast hreiðurkassana okkar, fóðrara, fuglakort og eldri tölublöð af Fuglum – en við erum ekki með posa.
Ljósm: Gunnlaugur Sigurjónsson.
Miðvikudaginn 25.febrúar næstkomandi mun Gunnlaugur Sigurjónsson áhugaljósmyndari segja frá, í máli og myndum, ferð sem farin var til Svalbarða sumarið 2013. Atburðurinn verður haldinn í Borgartúni 19 í húsakynnum Arion Banka og hefst kl. 20:30.
Gunnlaugur, Jóhann Óli Hilmarsson og Daníel Bergmann fóru sumarið 2013 með fjölþjóðlegum hópi ljósmyndara til Svalbarða. Sýndar verða myndir af landslagi, dýra- og fuglalífi Svalbarða. Í upphafi ferðar var nokkrum dögum eytt í nágrenni Longyearbyen og svo var farið í siglingu norður fyrir Svalbarða inn í hafísinn þar sem komist var í návígi við ísbirni og rostunga.
Sýningin hefst stundvíslega kl. 20:30 og er öllum opin svo lengi sem húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra. Samkvæmt venju verður hægt að nálgast hreiðurkassana okkar, fóðrara, fuglakort og eldri tölublöð af Fuglum – en við erum ekki með posa.
Ljósm: Gunnlaugur Sigurjónsson.