Viltu verða félagi í Fuglavernd?
Fuglavernd byggir afkomu sína að mestu leyti á félagsgjöldum og með aðild að félaginu færð þú m.a. áskrift að tímaritinu FUGLAR og frían aðgang að fræðslufundum og fuglaskoðunum á vegum félagsins.
Svífðu til liðs við Fuglavernd.
Hægt er að skrá sig í félagið af heimasíðu félagsins eða með tölvupósti í netfangið fuglavernd[hjá]fuglavernd.is
Tegundavernd
Með tegundavernd viljum við beina kastljósi að ábyrgðartegundum okkar Íslendina, stöðu tegunda á válista fugla sem er mat á hættu þeirra í útrýmingarhættu og til hvaða aðgerða við getum gripið til þess að vernda fuglategundirnar.
Búsvæðavernd
Með vernd búsvæða er átt við búsvæði fugla, þar sem þeir finna sér stað til fæðuöflunar, hvíldar og varps. Fjölskrúðugt fuglalíf er einn besti mælikvarði sem hægt er að leggja á svæði, þá er víst að þar þrífst heilbrigt vistkerfi.
Sjálfboðaliðastarf
Fuglavernd treystir á krafta félaga í sjálboðaliðastörfum. Vettvangurinn snýst ekki eingöngu á vinnu heldur er þetta einnig kjörið tækifæri félganna til að hittast og deila áhugmáli sínu; fuglum.
–Friðlandið í Vatnsmýrinni
Norræna húsið er við suðurenda Friðlands í Vatnsmýrinni. Þar koma félagar saman í apríl árlega og tína rusl og bæta aðgengi fugla að tjörnunum.
–Friðland í Flóa
Félagar hafa mætt til starfa í Friðlandi í Flóa við að stika göngustíg um svæðið sem er notaður til að skoða fugla. Enn fremur þarf að halda við fuglaskoðunarhúsinu sem og palli og rampi en það hefur verið gert af sjálfboðaliðum.