- This event has passed.
Dagur Jarðar – Fuglaskoðun í Grasagarðinum
22.04.2017 @ 11:00 - 14:00
FríttLaugardaginn 22. apríl n.k. er dagur Jarðar. Af því tilefni standa Grasagarður Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands , Fuglavernd – BirdLife Iceland og Býræktarfélag Íslands fyrir áhugaverðri og skemmtilegri dagskrá fyrir fólk á öllum aldri.
Byrjað verður á fuglaskoðun og fuglafræðslu í Grasagarðinum og svo verður haldið í sal Garðyrkjufélags Íslands þar sem hægt verður að fræðast um býflugnarækt; lífsferil, byggingu og atferli býflugna. Í víðsjá verður hægt að skoða drottningu, drunta og þernur og settir verða saman rammar og vaxplötur bræddar í þá.
Dagskrá
Kl. 11:00 í Grasagarði Reykjavíkur – Fuglalíf í Laugardal
Fuglalífið verður skoðað á göngu um garðinn. Þátttakendur eru hvattir til að taka kíkja með í gönguna sem Hannes Þór Hafsteinsson garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður leiðir.
Í garðskálanum (Kaffi Flóra) verður Fuglavernd með kynningu á garðfuglabæklingnum, fuglafóðri, fuglahúsum og almennt um starf félagsins.
Kl. 13:00 Í húsi Garðyrkjufélags Íslands, Síðumúla 1 (gengið inn Ármúlamegin). Súpa og brauð fyrir alla (á meðan birgðir endast).
Kl. 13:30 Kynning á Degi Jarðar – Björk Bjarnadóttir
Kl. 13:40 Eitur og óáran v/innflutnings á býflugum – Erla Björg Arnardóttir
Kl. 14:00 Kaffihlé
Kl. 14:15 Hunang: Efnasamsetning og geymsluþol – Herborg Pálsdóttir
Kl. 14:30 Mistök í býflugnarækt – Svala Sigurgeirsdóttir
Kl. 14:45 Lok
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Ljósmynd: Örn Óskarsson.