Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Vorverk í Vatnsmýrinni – sjálboðaliðar Fuglaverndar taka til hendinni

15.04.2023 @ 11:00 - 15:00

Frítt
Vorverk í Vatnsmýrinni – sjálboðaliðar Fuglaverndar taka til hendinni og allir eru hjartanlega velkomnir.

Vorverk í friðlandinu í Vatnsmýrinni

Fyrirhugað er að hafa hinn árlega tiltektardag í fuglafriðlandinu í Vatnsmýri í Reykjavík  laugardaginn 15. apríl 2023. kl. 11-15.

Þá plokkum við rusl, hreinsum til og dyttum að ýmsu til að gera allt klárt áður en fuglarnir byrja að verpa. Venjulega er mikið líf og fjör í fuglalífinu í Vatnsmýrinni á þessum tíma og margir farfuglar mættir.

Fólk er beðið að skrá sig með því að senda tölvupóst á fuglavernd@fuglavernd.is og tilkynna þátttöku.

Nauðsynlegt er að mæta vel búinn til útiverka, með vinnuhanska og best er að vera í stígvélum. Einnig er fólk hvatt til að taka með sér ruslatínur og hrífur ef það á slíkan búnað.

Fuglavernd leggur til nokkrar ruslatínur, glæra ruslapoka og félagsskap. Í boði verður hressing fyrir alla sjálfboðaliðana, drekkutími þar sem hægt er að ræða fuglamál og önnur mál.

Þetta er ekki bara vinnudagur heldur líka vettvangur fyrir félaga Fuglaverndar að hittast og skrafa saman.

Allir velkomnir en munið að skrá ykkur fyrirfram á fuglavernd@fuglavernd.is

Ekki gleyma að vera hlýlega klædd, það er ekki gaman að norpa í nepjunni: Vindheldur stakkur, lopapeysa, húfa, vettlingar , trefill og gúmmístígvél geta komið sér vel.

Details

Date:
15.04.2023
Time:
11:00 - 15:00
Cost:
Frítt
Event Categories:
, ,
Website:
fuglavernd.is

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Norræna húsið
Sæmundargata
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map