- This event has passed.
Farleið fugla um Texas – myndasýning
02.11.2023 @ 19:30 - 20:30
IKR1000Edward Rickson og Sigmundur Ásgeirsson voru á ferðinni í l Texas í apríl 2022 til að fylgjast með vorfarflugi á einni mikilvægustu farleiðum fugla í heiminum. Einn af hverjum þremur fuglum sem fljúga til Norður Ameríku að vori sunnar úr álfunni fara sem leið liggur umTexas og kallast leiðin á ensku Central Flyway sem gæti útlagst sem Miðfarleið á íslensku.
Edward segir ferðasögu þeirra félaga og sýnir ljósmyndir Sigmundar af fuglum sem þeir sáu á svæðinu.
Nánar um farleiðina á heimasíðu Audubon fuglaverndarfélags í Bandaríkjunum
Á myndinni má sjá fugl sem kallast Golden-Cheeked Warbler (Setophaga chrysoparia) sem mætti kalla eikarskríkju á íslensku þar sem tegundin verpir nánast eingöngu í eini – og eikarskógum í Texas. Nánar má fræðast um tegundina á heimasíðu the Cornell Lab
Sýnt verður í sal Arionbanka, Borgartúni 19. 105 Reykjavík.
Frítt inn fyrir félaga en utanfélagsmenn greiði 1000 krónur.