Skrifstofa og verslun Fuglaverndar verða lokuð vegna sumarfría frá og með 1. júlí. Vörupantanir verða að berast fyrir kl. 12 þriðjudag 30. júní svo hægt verði að ganga frá þeim, og senda ef þarf. Opnum að nýju þriðjudag 4. ágúst. Loka

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fuglaskoðun í Friðlandi í Flóa

23. júní @ 18:00 - 19:30
Þriðjudag  23. júní verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Tandri Gauksson, stærðfræðingur og félagi í Fuglavernd.

Gengið verður frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu

Fuglaskoðunin hefst kl. 18:30

Tímalengd: 1-2 klt.

Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél og hlýr fatnaður.

Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.

Hámarksfjöldi er 15 manns.

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl.13, þriðjudag 23.júní.

Nánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka.

 

Gera má ráð fyrir rúmri klukkustund í göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.

Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Hlýr fatnaður og gúmmístígvél eru lykilatriði til að njóta göngunnar. Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlingar og ullarsokkar. Ef engin eru stígvélin þá fer maður í gönguna á ullarsokkum og sandölum eða skóm sem mega blotna.

Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómur.

Lómur. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson
Lómur. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar.  Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og  fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

 

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl.13, þriðjudag 23.júní.

Details

  • Date: 23. júní
  • Time:
    18:00 - 19:30
  • Event Category: