- This event has passed.
Canondagur í Friðlandi í Flóa

Prófaðu Canon ljósmyndabúnað í Friðlandinu í Flóa
Á viðburðinum gefst Canon notendum kostur á að prófa úrval af Canon EOS R ljósmyndabúnaði, m.a. langar aðdrátttarlinsur fyrir fuglaljósmyndun, landslagslinsur, macro linsur o.fl. við náttúrulegar aðstæður. Við mælum þó með því að þáttakendur mæti einnig með eigin Canon myndavélar.
Aðeins 30 sæti eru í boði.
Við hvetjum þáttakendur til að sýna varkárni og aðgát. Mikilvægt er að virða slóða / stíga og fara sér hægt í kringum fuglalífið í Friðlandinu. Varp er hafið og því er mikilvægt að gengið sé varlega um svæðið – það er ekki gott ef lómurinn þarf að víkja af hreiðri í langan tíma.
Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon hjá Ofar, Kristján U. Kristjánsson, áhugaljósmyndari, og Bernhard Kristinn, atvinnuljósmyndari, verða á staðnum til að lána út búnað og veita góð ráð.
Gert er ráð fyrir því að fólk komi sér sjálft á staðinn.
Nauðsynlegt er að skrá sig.
