- This event has passed.
Aðalfundur Fuglaverndar 31. mars 2022
31.03.2022 @ 17:00 - 19:00
Fimmtudaginn 31.mars kl. 17:00
Salur Barðstrendingafélagsins, Hverfisgötu 105 2. hæð, 101 Reykjavík og á Zoom.
Samkvæmt 6. gr laga félagsins er dagskrá aðalfundar svohljóðandi:
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda fyrir sumardaginn fyrsta ár hvert og skal dagskrá hans vera sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 7. gr.
- Kosin stjórn samkvæmt 5 gr. samþykkta félagsins.
- Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara.
- Ákvörðun árgjalds.
- Önnur mál.
Við hvetjum sem flesta félaga að mæta annað hvort á Zoom eða á Hverfisgötu 105.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á Zoom fundinn í netfangið fuglavend@fuglavernd.is fyrir klukkan 15, 31. mars og fáið sendan hlekk á fundinn.