Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Vorverk í friðlandinu í Vatnsmýrinni

09.04.2022 @ 11:00 - 15:00

Frítt
Tiltekt í Vatnsmýrinni

Fyrirhugað er að hafa hinn árlega tiltektardag í fuglafriðlandinu í Vatnsmýri í Reykjavík  laugardaginn 9. apríl 2022. Þá plokkum við rusl, hreinsum til og dyttum að ýmsu til að gera allt klárt áður en fuglarnir byrja að verpa. Venjulega er mikið líf og fjör í fuglalífinu í Vatnsmýrinni á þessum tíma og margir farfuglar mættir.

Fólk er beðið að skrá sig með því að senda tölvupóst á fuglavernd@fuglavernd.is og tilkynna þátttöku.

Nauðsynlegt er að mæta vel búinn til útiverka, með vinnuhanska og best er að vera í stígvélum. Einnig er fólk hvatt til að taka með sér ruslatínur ef það á slíkan búnað

Fuglavernd leggur til ruslatínur nokkrar, glæra ruslapoka og félagsskap. Einng leggur Fuglavernd til hressingu fyrir röskt tiltektarfólk.

Allir velkomnir en munið að skrá ykkur fyrirfram á fuglavernd@fuglavernd.is

Details

Date:
09.04.2022
Time:
11:00 - 15:00
Cost:
Frítt
Website:
fuglavernd,is

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Norræna húsið
Sæmundargata
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map