- This event has passed.
Aðalfundur 2018 – Votlendissjóður
12.04.2018 @ 17:00 - 18:00
Aðalfundur Fuglaverndar 2018 verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl kl. 17:00 í sal Barðstrendingafélagsins að Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.
Eyþór Eðvarðsson kemur á fundinn og segir frá Votlendissjóði sem fyrirhugað er að stofna.
Samkvæmt lögum félagsins hefur Aðalfundur æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir sumardaginn fyrsta ár hvert og skal dagskrá hans vera sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu almanaksári.
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt 7. gr.
- Kosin stjórn samkæmt 5 gr. samþykkta félagsins.
- Kosinn skoðunarmaður félagsreikninga og einn til vara.
- Ákvörðun árgjalds.
- Önnur mál.
Kaffi og kleinur.