Svartþröstur

Svartþröstur - kvenfugl
Svartþröstur, kvenfugl. Ljósmynd: Örn Óskarsson.

Svartþröstur ber fræðiheitið Turdus merula og er af þrastaætt (Turdidae).

Fræðiheiti: Turdus merula.

Ætt: Þrastaætt (Turdidae).

Einkenni: Fullorðinn karlfuglinn er alsvartur að lit með gulan gogg. Gulur augnhringur. Kvenfuglar eru dökkbrúnir aðeins ljósari að neðan, kverkin ljósust. Rákir á bringur og brjósti. Ungfuglar eru svipaðir að lit og kvenfuglar en eru rákóttari, goggurinn á ungum karlfuglum lýsist eftir því sem líður á vetur.

Svartþröstur
Svartþröstur, karlfugl. Ljósmynd Örn Óskarsson.

Far: Líklegt að þeir eru staðfuglar. Nokkuð algengur haust og vetrargestur. Svartþrestir byrjuðu að verpa í einhverju mæli á Innnesjum eftir mikla göngu vorið 2000. Uppruni þeirra er ekki ljós. Svartþrestir koma til Íslands í töluverðu mæli á haustin, fuglar sem lenda í villast á farflugi, og sjást nú orðið í görðum og trjálundum víðast hvar.

Varptími: Byrja varp snemma, apríl og fram í ágúst. Geta verpt nokkrum sinnum yfir sumarið, jafnvel þrisvar.

Fæða: Aðallega skordýr og ánamaðkar. Ber að hausti og frameftir vetri á meðan þau eru til staðar. Kemur í fuglafóður. Epli eru þá sérstaklega vinsæl hjá þeim.

Stofnstærð: Svartþröstur er nú algengur varpfugl í þéttbýli á Suðvesturlandi og verpur auk þess hér og hvar á Suður-, Vestur- og Norðurlandi. Er líklega alger staðfugl og sáust yfir 2.000 fuglar í vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar um áramótin 2016/2017.

EVRÓPA (VARPPÖR) ÍSLAND (VARPPÖR) ÍSLAND VETUR (EINSTAKLINGAR)
40.000.000-82.000.000 gæti verið nokkur þúsund pör 2.000>

Vefverslun

Í vefverslun Fuglaverndar má kaupa fuglafóður og hreiðurhús fyrir þresti.