Jólakortið okkar í ár er af skógarsnípu sem er árlegur flækingur á Íslandi
des, 2015
Fuglalíf að vetri í Grasagarðinum sunnudag 13. des.
Fjölskrúðugt vetrarfuglalífið í Laugardal verður skoðað á göngu um Grasagarðinn og nágrenni sunnudaginn 13. desember 2015 kl. 11. Gangan er skipulögð í samstarfi Grasagarðs Reykjavíkur og Fuglaverndar. Um leiðsögn sér Hannes Þór Hafsteinsson, náttúrufræðingur og garðyrkjufræðingur hjá Borgargörðum í Laugardal, en hann þekkir fuglalífið í Laugardalnum manna best og miðlar þeirri þekkingu með skemmtilegum og fróðlegum hætti.
Mæting er við aðalinngang Grasagarðsins. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Fjölmargar fuglategundir halda til í Laugardal yfir vetrartímann. Algengastir eru skógarþrestir, svartþrestir, starar, auðnutittlingar, stokkendur, grágæsir og húsdúfur. Minnsti fugl Evrópu, glókollurinn, fannst fyrst verpandi á Íslandi 1999. Nú verpa nokkur pör reglulega í Laugardal og ef vel er að gáð má finna þennan smávaxna landnema í trjálundum dalsins. Á hverjum vetri halda nokkrir múasarrindlar til í Laugardalnum og krossnefir og barrfinkur hafa sést af og til í vetur. Og flesta vetur undanfarin ár hafa branduglur sótt í dalinn.
Á myndinni má sjá skógarþröst, stara og gráþröst þræta um epli. Mynd Örn Óskarsson.
nóv, 2015
Loftlagsganga 29.nóv.2015
Mánudaginn 30. nóvember hefst loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna í París. Þar er stefnt að bindandi samkomulagi um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda með það að markmiði að hlýnun andrúmslofts jarðar haldist innan 2° C.
Alþjóðlegar grasrótarhreyfingar þrýsta á þjóðarleiðtoga um að draga nægilega úr losun til að halda hlýnun jarðar undir 2° C og krefja iðnríkin að standa við það fyrirheit frá 2009 að styrkja þriðjaheimsríki um 100 milljarða dollara á ári frá og með 2020. Annars vegar til að þessi ríki geti aðlagast nýjum og erfiðum aðstæðum vegna breytinga á loftslagi og hins vegar til að gera þeim kleift að nýta hreinar og endurnýjanlegar orkulindir. Liður í því er Global Climate March sem verður gengin í fjölmörgum borgum um allan heim þann 29. nóvember næstkomandi.
Fuglavernd ætlar að taka þátt og hvetjum við félagsmenn til að mæta á svokallað „Drekasvæði“ sem staðsett er á horni Kárastígs, Frakkastígs og Njálsgötu, þaðan sem gengið verður til kröfufundar á Lækjartorgi.
Frekari upplýsingar um gönguna má finna hér.
Loftslagsáhrif eru mikil á fugla. BirdLife í samstarfi við Audubon gefur út skýrslu í tilefni af loftlagsráðstefnunni um áhrif loftlagsbreytinga á fuglalíf: Sjá hér: http://climatechange.birdlife.org/
Við viljum undirstrika þá kröfu að Ísland axli ábyrgð sína í loftslagsmálum og skuldbindi sig í París til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um að minnsta kosti 40% fyrir árið 2030 – óháð markmiði ESB um 40% samdrátt í losun. Ennfremur beri Íslandi að stefna að kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 líkt og mörg önnur lönd gera.
okt, 2015
Fuglaskoðunarbæklingur
Í tilefni af Fuglaviku í Reykjavík er kominn út nýr bæklingur er heitir FUGLASKOÐUN Í REYKJAVÍK. Í bæklingnum er greint frá helstu fuglaskoðunarstöðum í borginni og þeir sýndir á sérstöku korti. Jafnframt eru tilgreindar helstu tegundir fugla sem má sjá á hverjum stað. Bæklingurinn er ókeypis og aðgengilegur hér á vefnum en einnig í prenti í þjónustuveri borgarinnar í Borgartúni 12-14 sem og hjá okkur hér í Fuglavernd og á fleiri stöðum í borginni. Bæklingurinn er einnig gefinn út á ensku.
Hér má skoða bæklingana:
Fuglaskoðun í Reykjavík – á íslensku
Birdwatching in Reykjavík – á ensku
Ljósmynd: Elma Rún Benediktsdóttir
okt, 2015
Fuglavika í Reykjavík
Reykjavíkurborg – Reykjavík – Iðandi af lífi- og Fuglavernd standa fyrir fuglaviku í Reykjavík dagana 17.-23. október þar sem boðið verður uppá margs konar fræðsluviðburði með það að markmiði að vekja athygli á því fjölskrúðuga fuglalífi sem glæðir borgina árið um kring.
Fuglavikan hefst með málþingi í Norræna húsinu, undir yfirskriftinni Fuglar í borg. Þar verður sagt frá skemmtilegum fuglaskoðunarstöðum í borginni, rætt um búsvæði og vernd og einnig verður rætt um fuglatengt starf með leikskólabörnum.
Þá verður boðið upp á fuglaskoðun á ólíkum stöðum í borginni alla fuglavikuna, þar sem ein þeirra verður á ensku. Einnig er nýr fræðslubæklingur í smíðum um fuglaskoðunarstaði í Reykjavíkurborg og verður bæklingurinn gefinn út bæði á íslensku og ensku.
Málþingið verður haldið laugardaginn 17. október undir yfirskriftinni “Fuglar í borg” og byrjar klukkan 13:00 í Norræna húsinu. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Þrjú erindi verða á málþinginu.
Fuglar og búsvæði borgarinnar – Snorri Sigurðsson.
Mínir fuglaskoðunarstaðir – Elma Rún Benediktsdóttir.
Fuglavinna með börnum – Sigrún Björg Ingþórsdóttir.
Fuglaskoðanir
Laugardaginn 17.okt. Fuglaskoðun – Vatnsmýrin / Tjörnin kl.15:00
Við byrjum á að skoða fugla í Vatnsmýrinni – lagt af stað frá Norræna húsinu beint eftir málþingið kl.15:00. Edward Rickson leiðir gönguna.
Sunnudaginn 18. okt. Fuglaskoðun – Strandfuglar í Skerjafirði kl.15:00
Hist við Skeljanes í Skerjafirði við strætóskýlið. Mikið fuglalíf er á þessum slóðum allan ársins hring. Börn eru sérstaklega boðin velkomin :-). Hópinn leiða þau Ásgerður Einarsdóttir og Snorri Sigurðsson.
Mánudaginn 19. okt. Fuglaskoðun á ensku – Tjörnin kl.13:00
Hist við Ráðhús Reykjavíkur.
Þriðjudaginn 20. okt. Fuglaskoðun við Elliðavatn
Hist við Elliðavatnsbæinn – kl 16:15. Á haustin og veturna halda ýmsar andategundir sig við vatnið. Einnig verður leitað að skógarfuglum.
Miðvikudaginn 21. okt. Fuglaskoðun – Laugarnes kl.13:00
Hist við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar. Snorri Sigurðsson leiðir fuglaskoðunina. Laugarnes er heppilegur staður til að horfa yfir sundin og fylgjast með sjófuglum.
Fimmtudaginn 22. okt. Garðfuglar og fóðurgjafir – Grasagarður Reykjavíkur kl.10:00
Fuglafræðsla í Grasagarði Reykjavíkur. Hist við innganginn í garðinn.
Föstudaginn 23. okt. Fuglaskoðun – Elliðaárdalur kl.14:00
Hist við Árbæjarstíflu. Anna María Lind Geirsdóttir leiðir fuglaskoðunina og eru börn boðin hjartanlega velkomin ásamt foreldrum eða kennurum.
Munum að klæða okkur eftir veðri – og taka sjónauka og jafnvel fuglabók með.
sep, 2015
Dagur íslenskrar náttúru – fuglaskoðun við Bakkatjörn
Miðvikudaginn næstkomandi, 16.september, verður Fuglavernd með fuglaskoðun við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi – í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Við munum a.m.k. skoða endur, gæsir og máfa og líklega einhverja vaðfugla. Gaman er að taka með sér fuglabók og sjónauka en að auki verður stór fuglasjónauki með í för.
Mæting klukkan 5 við bílastæðið v. Bakkatjörn. Elma Rún Benediktsdóttir fuglaskoðari með meiru mun leiðbeina við fuglaskoðunina. Svo er bara að klæða sig eftir veðri.
Má einnig sjá á fésbók félagsins.
Elma Rún Benediktsdóttir tók þessa fallegu mynd af hettumáfi.
ágú, 2015
Alþjóðleg ráðstefna um orrafugla
Núna í haust verður haldin í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um vistfræði og verndun orrafugla (The 13th International Grouse Symposium). Rjúpan tilheyrir þessum hópi fugla. Ráðstefnuna sækja fræðimenn víða að úr heiminum og gera grein fyrir rannsóknum sínum á orrafuglum. Ráðstefnan er öllum opin. Sjá link á vef ráðstefnunnar hér.
ágú, 2015
Nýtt tölublað fugla er komið út
Í lok júní síðastliðinn kom út tölublað nr. 10 af Fuglum, þar sem er fjallað um fugla og náttúruvernd á léttan og aðgengilegan hátt. Efnistök eru fjölbreytt og lifandi og blaðið prýðir einstakar ljósmyndir.
Ein af höfuðgreinum þessa blaðs fjallar um það hvort fuglum á Íslandi sé tryggð nægjanleg vernd með lögum, farið er inn á nýtingu og veiðar villtra fugla, og stöðu svartfugla vegna viðvarandi nýliðunarbrests. Annáll flækinga er svo alltaf áhugaverður og yfirlit yfir sjaldgæfa varpfugla líka.
Blaðið er innifalið í félagasaðild að Fuglavernd og er sent nýjum félögum þeim að kostnaðarlausu. Hér má skrá sig í félagið.
jún, 2015
Friðlandið í Flóa – sunnudag
Sunnudaginn 21. júní 2015 mun Fuglavernd bjóða upp á fuglaskoðun í Fuglafriðlandinu í Flóa. Jóhann Óli Hilmarsson mun leiða okkur um svæðið en fuglaskoðunin hefst klukkan 17:00 við fuglaskoðunarskýlið sem er við bílastæðið í Friðlandinu. Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma en nærri 25 tegundir verpa þar að staðaldri.
jún, 2015
Fuglaleiðsögn í Vatnsmýrinni 13.júní
Í tilefni af Fundi fólksins verður Elma Rún Benediktstóttir með fuglaleiðsögn um fuglafriðlandið í Vatnsmýrinni laugardaginn 13. júní 2015 frá 16:00-16:45. Farið verður frá andyri Norræna hússins stundvíslega kl. 16:00- en gaman er að taka með sjónauka og fuglabók.
Fundur fólksins er lífleg þriggja daga hátíð um samfélagsmál í Norræna húsinu og næsta nágrenni þess dagana 11. til 13. júní. Slegið verður upp tjaldbúðum og skemmtilegir kofar setja svip á hátíðarsvæðið. Þar munu hin ýmsu félagasamtök, stofnanir og flokkar vera með starfsemi alla hátíðina. Í bland við líflegar umræður verða tónlistaratriði og fuglaskoðun en hægt verður að kaupa bæði mat og drykk á svæðinu.Sjá dagskrá hér: Fundur fólksins
Ljósmynd af kríu í Vatnsmýrinni, Elma Rún Benediktsdóttir.