Laugardaginn 6. apríl mættu hinir frábæru sjálfboðaliðar Fuglaverndar í Vatnsmýrina í Reykjavík og tóku til hendinni. Menn sammæltust um að minna rusl var þetta vorið í mýrinni en mörg vor og alls engin kóvíd-gríma fannst. Ein líkleg skýring á minna ruslmagni var að lægðir þennan vetur höfðu verið færri svo að minna rusl var á ferðinni.
Sjálboðaliðar Fuglaverndar eru að sönnu ómissandi og eru allir félagar að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir þegar við auglýsum eftir sjálboðaliðum.