Viltu verða félagi í Fuglavernd?
Fuglavernd byggir afkomu sína að mestu leyti á félagsgjöldum og með aðild að félaginu færð þú m.a. áskrift að tímaritinu FUGLAR og frían aðgang að fræðslufundum og fuglaskoðunum á vegum félagsins. Gakktu (svífðu) til liðs við Fuglavernd. Árgjald er frá 4400 kr til 6600 kr. Hér geturðu sótt um félagsaðild.
Verkefni Fuglaverndar eru margvísleg
Fuglar byggja tilveru sína á því að geta aflað sér fæðu, ásamt því að hafa hentuga staði til hvíldar og varps. Mörg þeirra svæða sem fuglar byggja afkomu sína á eru í hættu vegna athafna mannsins.
Á meðal verkefna eru:
-ELSP – Endurheimt landslagsheilda sem er frekar nýlegt verkefni hjá Fuglavernd
-Friðland í Flóa sem er griðastaður votlendisfugla og annara fugla
-Garðfuglaverkefni almennings; fóðrun og talning,
-Hafnarhólminn þar sem mannveran kemst í seilingarfjarlægð við lunda og stendur á öndinni af gleði.
-Hér geturðu lesið nánar um búsvæðaverndarstarf Fuglaverndar
Fuglavernd er aðili að BirdLife International sem eru samtök 115 fuglaverndarfélaga út um allan heim.