- This event has passed.
Canon í Friðlandinu í Flóa / Uppselt
04.05.2019 @ 17:00 - 20:00
SkráningCanon, Fuglavernd og Origo standa fyrir skemmtilegum viðburði í Friðlandinu í Flóa laugardaginn 4. maí nk. þar sem Canon notendum gefst kostur á að prófa mikið úrval af Canon ljósmyndabúnaði, m.a. langar aðdrátttarlinsur, við náttúrulegar aðstæður.
Þeir Jóhann Óli Hilmarsson og Alex Máni, sem báðir gjörþekkja Friðlandið í Flóa, verða þátttakendum innan handar og leiðbeina um helstu staði og umgengni um svæðið og starfsmenn frá Origo aðstoða með Canon búnað.
Viðburðurinn er aðeins fyrir Canon notendur og er mikilvægt að fólk komi með sinn eigin búnað.
Ókeypis er á viðburðinn en nauðsynlegt er að skrá sig. Aðeins 30 sæti í boði.
Skráning á: Canon í Friðlandinu í Flóa
Athugið að ef apríl verður blautur þá er gott að mæta með stígvél.
Fuglalífið
Á þessum árstíma er fuglalífið í Friðlandinu í sínu fínasta pússi. Lómarnir fljúga um gólandi eða slást um varpstaði á tjörnunum, jaðarkanar, lóuþrælar, hrossagaukar og þúfutittlingar iðka söngflug sitt af krafti og ef við erum heppin, sýna fyrstu óðinshanar vorsins sig. Ýmsar endur, álftir, gæsir og fleiri vaðfuglar eru að búa í haginn fyrir varp eða fuglarnir eru þegar orpnir.
Aðkoma
Aðkoma í Friðlandið er frá Eyrarbakkavegi, ca. fyrir miðju Eyrarbakkaþorpi. Til að finna skoðunarhúsið er ekið til norðurs að bænum Sólvangi og framhjá honum og síðan sem leið liggur norður Engjaveg framhjá Flóagaflshverfinu og stuttu síðar beygt til vinstri, þar sem skilti vísar á Stakkholt og bílastæði. Skoðunarhúsið er eina byggingin í mýrinni og blasir við víða að.