Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Vorverk í Vatnsmýrinni 2026

11. apríl @ 11:00 - 17:00

Takið daginn frá því vorverk í Vatnsmýrinni í Reykjavík verða undir leiðsögn Ólafs Karls Nielsen, mikilvirks fræðimanns á sviði vistfræði og fyrrum formanns Fuglaverndar og Ólafs Einarssonar, líffræðings og kennara. Sjálfboðaliðar munu tína rusl og bæta aðgengi fugla að tjörnum í Vatnsmýrinni. Hádegismatur í boði Fuglaverndar og veitingastaðarins Plöntunnar. Norræna húsið býður okkur afnot af kaffistofu starfsmanna hússins.

– Reykjavikurborg mun lána okkur hrífur og ruslatínur og sjá okkur fyrir trjágreinum til að leggja á tjarnarbakkana. Fuglavernd sér mannskapnum fyrir ruslapokum.

-Það er spáð norðaustan átt og getur orðið svalt. Klæðið ykkur vel samkvæmt veðri. Vinnuvettlingar og stígvél eru þarfaþing. Þeir sem eiga vöðlur eru hvattir til að nota þær. Það er alltaf rusl í tjörnum og síkjum í Vatnsmýrinni sem erfitt er að góma frá bökkunum.

-Vorverkin hefjast klukkan 11:00. Tínum rusl í tvo tíma og síðan er hádegismatur kl. 13:00.  Förum aftur út og klárum rest eftir mat.

-Þeim mun fleiri sem mæta, þeim mun betur vinnast verkin!  Allir félagar Fuglaverndar og aðrir velunnarar fugla og Vatnsmýrarinnar eru hjartanlega velkomnir í ruslatínslu og hádegismat.

 

Nauðsynlegt er að skrá sig:

– Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 13:00 fimmtudag 9. apríl: fuglavernd@fuglavernd.is.

Skráning er nauðsynlega svo það verði nægur matur handa öllum

Við hittumst við Norræna húsið.

 

Details

Venue

  • Norræna húsið
  • Sæmundargata
    Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
    + Google Map