- This event has passed.
Tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýri
08.04.2017 @ 11:00 - 15:00
Laugardaginn 8. apríl 2017 standa Hollvinir Tjarnarinnar fyrir árvissri tiltekt á friðlandinu í Vatnsmýrinni við Norræna Húsið.
Við ætlum að hittast við Norræna húsið kl. 11. Helstu verkefni eru ruslatínsla, hanskar og pokar verða á staðnum.
Norræna húsið og Aalto bistro bjóða uppá hádegishressingu, súpu og kaffi. Sjálfboðaliðar eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig, til að áætla fjölda.
Skráning í tiltekt í friðlandinu í Vatnsmýri laugardag 8. apríl kl. 11-15.
Eins og alltaf er velkomið að koma síðar um daginn og slást í hópinn.