- This event has passed.
Strandhreinsun Víðisandi
31.08.2018 @ 09:00 - 14:30
fríttSendiráð Bandaríkjanna og Blái herinn bjóða þér að taka þátt í árlegum strandhreinsunardegi föstudaginn 31. ágúst á Víðisandi, Ölfusi.
Við höldum áfram að sameinast við að hreinsa fjörur landsins og viljum bjóða ykkur að vera með í þessu frábæra verkefni þar sem Bandaríkin og Ísland taka höndum saman og gera umhverfið betra.
Sendiráðið býður upp á hressingu á staðnum
Því er mikilvægt að staðfesta þátttöku sem fyrst, svo hægt sé að áætla hvað við þurfum mikið af mat og drykk.
Staðfestu þátttöku á reykjavikprotocol@state.gov
Sætaferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur
Kl. 09:00 fer rúta frá Ráðhúsi Reykjavíkur og áætluð heimkoma er kl. 14:30.
Fyrir þá sem ætla á einkabílum, mælumst við til þess að fólk sameinist í bíla. Gert er ráð fyrir að vera á Víðisandi um kl. 10:00.
GPS hnit: 63° 52.171’N, 21° 45.884’W.
Athugið að klæða ykkur eftir veðri og hafa góða vettlinga meðferðis.
Við hlökkum til að sjá ykkur þann 31. ágúst.