Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Prófaðu Canon ljósmyndabúnað í Friðlandinu í Flóa

06.05.2023 @ 10:00 - 14:00

Canon, Fuglavernd og Origo standa fyrir viðburði í Friðlandinu í Flóa laugardaginn 6. maí frá kl. 10.00 – 14.00 þar sem Canon notendum gefst kostur á að prófa mikið úrval af Canon EOS R ljósmyndabúnaði, m.a. langar aðdrátttarlinsur, við náttúrulegar aðstæður.

Náttúrulífsljósmyndarinn Daníel Bergmann verður á staðnum og mun leiðbeina fólki varðandi umgengni um Friðlandið og fuglalífið þar sem og varðandi tæki og fuglaljósmyndun. Finnski náttúrulífsljósmyndarinn, Markus Varesvuo, verður einnig á staðnum til að gefa ráð.

Við hvetjum eigendur Canon EOS R myndavéla til að mæta með eigin vélar.

Aðeins 30 sæti eru í boði og er gert ráð fyrir því að fólk komi sér sjálft á staðinn.

Hér er skráning 

Details

Date:
06.05.2023
Time:
10:00 - 14:00
Event Categories:
,

Organizers

Origo
Fuglavernd

Venue

Friðlandið í Flóa
Floi bird reserve Ölfus 816 Iceland + Google Map