- This event has passed.
Loftslagsgangan í Reykjavík
08.09.2018 @ 14:00 - 15:00
FríttHinn 8. september verður Loftslagsgangan gengin í Reykjavík í þriðja sinn og í ár verður baráttugleðin í fyrrirúmi.
Krafa göngunnar er einföld: Að tafarlaust verði gripið til árangursríkra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ríkisstjórnin verður að draga vagninn og greiða götuna fyrir sjálfbæru samfélagi.
Safnast verður saman fyrir framan Hallgrímskirkju kl. 14 og gengið niður Skólavörðustíg, Laugaveg og Bankastræti að Lækjartorgi, þar sem haldinn verður stuttur kröfufundur.
Við hvetjum alla til að koma og ganga með loftslaginu!