Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fuglaskoðun III – Friðlandið í Flóa

16.06.2018 @ 17:00 - 18:00

Frítt
Lómapar á tjörn í Friðlandinu í Flóa.

Sjálfboðaliðar og félagar í Fuglavernd bjóða í júní uppá leiðsögn um Friðlandið í Flóa.

Laugardaginn 16. Júní 2018 kl. 17:00 verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Hlynur Óskarsson dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands og forsvarsmaður Votlendisseturs Íslands.

Fuglaskoðunin hefst kl. 17:00. Brottför er frá fuglaskoðunarhúsinu sem stendur við bílastæðið í Friðlandinu. Gera má ráð fyrir um klukkustund til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.

Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn, sem var fugl ársins 2017 hjá Fuglavernd.

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins (nú Árborgar).  Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.

Mikilvægt er að vera vel skóaður, í stígvélum eðan nær vatnsheldum skóm, því það er frekar blautt á. Sjónauka og handbók um fugla er tilvalið að grípa með.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Aðkoma

Aðkoma í Friðlandið er frá Eyrarbakkavegi, ca. fyrir miðju Eyrarbakkaþorpi. Til að finna skoðunarhúsið er ekið til norðurs  framhjá  bænum Sólvangi og áfram sem leið liggur norður Engjaveg, síðan er beygt til vinstri, þar sem skilti vísar á Stakkholt og bílastæði. Skoðunarhúsið er eina byggingin í mýrinni og blasir við víða að.

Kort af Friðlandinu í Flóa
Kort af Friðlandinu í Flóa
Afstöðukort af Friðlandinu í Flóa.
Afstöðukort af Friðlandinu í Flóa.

Myndband

Í þessu myndbandi fjallar Hlynur Óskarsson um losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og þær aðgerðir sem brýna nauðsyn ber til að ráðast í endurheimt votlendis. Sjá Verkefnin>Votlendi

Details

Date:
16.06.2018
Time:
17:00 - 18:00
Cost:
Frítt
Event Category:

Organizer

Fuglavernd
Phone
5620477
Email
fuglavernd@fuglavernd.is
View Organizer Website

Venue

Friðlandið í Flóa
Floi bird reserve Ölfus 816 Iceland + Google Map