Fuglaskoðun í Hólavallakirkjugarði í Reykjavík
15. febrúar @ 11:00 - 13:00
FreeGlókollur í Hólavallakirkjugarði. Ljósm. Árni Árnason.
Anna Pratichi Gísladóttir, líffræðinemi, mun sjá um 1-2 klt leiðsögn í fuglaskoðun um Hólavallakirkjugarð.
Fuglaskoðunin er ókeypis og allir fuglavinir eru velkomnir.
Hittumst við hliðið á horni Ljósvallagötu og Hringbrautar.
Fuglavernd mælir með að fólk mæti í hlýlegum fötum, sem eru aðeins of heit fyrir göngu en fín í létta göngu og stöður við fuglaskoðun. Gott að hafa með sér aukaflíkur í bakpoka/ tösku. Einnig er gott að hafa með sér sjónauka, best er að vera með lítinn sjónauka sem nýtist í fuglaskoðun í trjám og milli trjáa og leiða.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 15 fimmtudaginn 13. febrúar: Nafn, fjöldi þáttakanda og netfang.
Gert er ráð fyrir að fuglaskoðunin verði 15. febrúar en ef veður verða óhagstæð þann dag breytist dagsetning.
Fylgist með á viðburðadagatalinu.