- This event has passed.
Fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa 2. júní 2022
02.06.2022 @ 18:30 - 20:30
FreeFimmtudaginn 2. júní verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Trausti Gunnarsson, leiðsögumaður og ritari stjórnar Fuglaverndar.
Brottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu
Fuglaskoðunin hefst kl. 18:30
Tímalengd: 1-1,5 klt.
Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður.
Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.
Hámarksfjöldi er 15 manns.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 fimmtudag 2. júní.
Gera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.
Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlngar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin.
Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn.
Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar. Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.
Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 fimmtudag 2. júní