Fuglaskoðun í Friðlandi í Flóa

Fimmtudag 9. júní verður boðið upp á fuglaskoðun í friðlandinu í Flóa og leiðsögumaður að þessu sinni er Gunnlaugur Þráinsson, viðskiptafræðingur, leiðsögumaður, fuglaskoðari og félagi í Fuglavernd.
Gengið verður frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu
Fuglaskoðunin hefst kl. 18:30
Tímalengd: 1-2 klt.
Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél og hlýr fatnaður.
Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.
Hámarksfjöldi er 15 manns.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 mánudag 8. júní.
Nánari upplýsingar um svæðið og hvar það er staðsett norðan Eyrarbakka.
Gera má ráð fyrir rúmri klukkustund í göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.
Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin. Hlýr fatnaður og gúmmístígvél eru lykilatriði til að njóta göngunnar. Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlingar og ullarsokkar. Ef engin eru stígvélin þá fer maður í gönguna á ullarsokkum og sandölum eða skóm sem mega blotna.
Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómur.

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar. Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.
Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is fyrir kl. 13 mánudag 8. júní.
