Loading Events

« All Events

Fuglaskoðun í friðlandi í Flóa sumarið 2025

11. júní @ 18:00 - 25. júní @ 20:00

Free
Fuglaskoðun

Stefnt er á að vera með tvær fuglagöngur í Friðlandi í Flóa í júní. Enn er ekki búið að festa dagsetningu en fylgist með á viðburðadagatali Fuglaverndar.

 

Brottför er frá fuglaskoðunarhúsinu við bílastæðið í Friðlandinu

Fuglaskoðunin hefst kl. 18:30

Tímalengd: 1-1,5 klt.

Nauðsynlegur fatnaður: Gúmmístígvél. Hlýr fatnaður.

Mikilvægur útbúnaður: Sjónauki.

Hámarksfjöldi er 20 manns.

Vinsamlega skráið ykkur með tölvupósti til fuglavernd@fuglavernd.is

Gera má ráð fyrir rúma klukkustund í göngu og stöður til að sjá, heyra og upplifa fuglalífið í Friðlandinu.

Hlýr fatnaður er t.d. tvær peysur undir vindheldum stakki jafnvel lopapeysa eða dúnúlpa. Húfa, vettlngar og ullarsokkar. Það er júní og sumar en getur orðið svalt á kvöldin.

Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Fuglalíf Friðlandsins í Flóa er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma, en nærri 25 fuglategundir verpa þar að staðaldri. Einkennisfugl svæðisins er lómurinn.

 

Friðlandið í Flóa er votlendi sem hafist var handa við að endurheimta árið 1997 í samstarfi Fuglaverndar og sveitarfélagsins Árborgar. Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir alla jafnt einstaklinga og fjölskyldur að upplifa lifandi náttúru.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

 

 

Afstöðukort af Friðlandinu í Flóa.
Afstöðukort af Friðlandinu í Flóa.

 

 

 

Details

Start:
11. júní @ 18:00
End:
25. júní @ 20:00
Cost:
Free
Event Category: