- This event has passed.
Fuglaskoðun: Friðlandið í Flóa
04.06.2017 @ 17:00 - 18:00
FríttSunnudaginn 4. júní 2017 býður Fuglavernd upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Flóa. Leiðsögumaður að þessu sinni verður Hlynur Óskarsson dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands og forsvarsmaður Votlendisseturs Íslands.
Fuglaskoðunin hefst klukkan 17:00 við fuglaskoðunarskýlið sem er við bílastæðið í Friðlandinu.
Votlendisfuglar einkenna svæðið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir.
Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma en nærri 25 tegundir verpa þar að staðaldri.
Fugl ársins 2017, lómurinn, er einkennisfugl svæðisins.
Lesa meira um Friðlandið í Flóa, gróður, dýralíf og starf Fuglaverndar á svæðinu.
Mikilvægt er að vera í stígvélum eða nær vatnsheldum skóm því það er frekar blautt á.
Muna eftir sjónaukanum og gaman er að taka með handbók um fugla.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.