Fuglalíf við Sogið – fuglaskoðun
7. júní @ 14:00 - 16:00
Fuglalíf við Sogið
Laugardaginn 7. júní kl. 14:00 munu tveir félagar í Fuglavernd leiða áhugasama og líta og hlusta eftir fuglum við Sogið undir Ingólfsfjalli.
Tekið verður á móti áhugasömum fuglavinum á bílastæði Alviðru. Gengið verður af stað kl. 14 niður að Sogi og hlustað og skimað eftir fuglum. Gangan er létt en hafa verður í huga, að við fuglaskoðun
er mikið staðið, hlustað og horft, og því mikilvægt að vera vel klædd. Fuglaskoðunin varir í um 2 klukkutíma.
Eftir fuglaskoðun býður Landvernd upp á kakó og kleinur í bóndabænum og verður að sjálfsögðu spjallað um fugla. Hægt verður að skoða uppstoppaða fugla sem eru geymdir í bænum.
14:00 Fuglaskoðun hefst.
16: 00 kakó, kleinur og spjall
Gott að hafa með sér: Sjónauka.
Munið að vera klædd eftir veðri.